Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Hnífar, hótanir og handtökur á höfuðborgarsvæðinu

Perlan
Perlan Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hafði í nógu að snúast frá klukkan fimm til fimm síðdegis í dag. Alls voru 95 mál skráð í kerfi lögreglu á tíma­bilinu og voru þrír vistaðir í fanga­geymslu þegar dagbókin var tekin saman.

Meðal verkefna lögreglu voru tvö mál þar sem hnífar komu við sögu. Í öðru tilvikinu var tilkynnt um einstakling í annarlegu ástandi sem hafði komið á ölhús og ógnað vörðum með hnífi. Viðkomandi var hand­tekinn og vistaður í fanga­klefa þar til hann verður skýrslu­hæfur.

Í hinu tilvikinu var lögregla kölluð til vegna þjófnaðar í matvöru­verslun. Samkvæmt tilkynningu hafði einstaklingur ógnað starfs­fólki verslunarinnar með hnífi áður en hann komst undan. Lögregla hafði hins vegar uppi á honum skömmu síðar skammt frá vettvangi og handtók hann. Málið er til rann­sóknar.

Lögregla hafði einnig afskipti af einstaklingi sem er meðal annars grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna og lyfja, vopna­lagabrot og peninga­þvætti.

Þrír ökumenn voru stöðvaðir sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja. Þeir voru allir sviptir ökuréttindum og voru látnir lausir að lokinni blóð­sýnatöku.

Tveir aðrir ökumenn voru grunaðir um að hafa neytt áfengis en mældust undir refsimörkum. Þeim var engu að síður gert að hætta akstri.

Erlendur einstaklingur var jafnframt hand­tekinn vegna gruns um brot á útlendinga­lögum og dvöl hér á landi án dvalar­leyfis.

Þá varð umferðar­slys þegar ökumaður bifreiðar ók á einstakling á rafhlaupahjóli. Sá síðarnefndi var fluttur með sjúkra­bifreið á sjúkrahús með minni­háttar áverka.

Lögregla sinnti auk þess tveimur vinnu­slysum. Í báðum tilvikum voru hinir slösuðu fluttir á sjúkrahús með minni­háttar áverka. Tilkynningar bárust einnig um þjófnað úr matvöru­verslun og húsbrot, sem er til rann­sóknar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning