1
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

2
Minning

Margrét Jónsdóttir er fallin frá

3
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

4
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

5
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

6
Heimur

Ferðamaður lést á Kanarí

7
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

8
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

9
Innlent

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík

10
Minning

Steingrímur Ari Arason er látinn

Til baka

„Eins og flest sem Ólafur segir um fyrirtæki bænda, stórundarlegur málflutningur“

Ritstjóri Bændablaðsins segir í leiðara að framkvæmdastjóri FA haldi því fram að það sé rangt af kjötafurðastöðvum að taka þátt í útboði tollkvóta Evrópusambandsins á kjöti

Þröstur Helgason ritstjóri Bændablaðsins
Þröstur Helgason bókmenntafræðingur er ritstjóri BændablaðsinsSegir að nú sé komið nóg

Ritstjóri Bændablaðsins, Þröstur Helgason bókmenntafræðingur, segir í leiðara að Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, haldi því fram að það sé „rangt af kjötafurðastöðvum á borð við Kaupfélag Skagafjarðar, Mata og Sláturfélag Suðurlands, sem að hluta eða öllu leyti eru í eigu bænda, að taka þátt í útboði tollkvóta Evrópusambandsins á kjöti.“

Ólafur Stephensen SA
Ólafur StephensenÓlafur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda

Segir Þröstur að ástæðan sé ekki sú að afurðastöðvarnar séu með þessu að brjóta lög heldur sú að fyrirtækin séu nú að fara gegn þeirri skoðun bændanna, sem eru á meðal eigenda, að til Íslands eigi að flytja sem minnst af erlendum kjötafurðum:

„Fyrirtæki ættu með öðrum orðum ekki að taka þátt í viðskiptum sem á einhvern hátt stangast á við skoðanir eigenda sinna.“

Þröstur telur að flestir ef ekki allir „sjái að þetta gengur ekki upp sem almenn regla, þó að Ólafi finnist hún eigi að gilda um fyrirtæki í eigu bænda.“

Þröstur vekur athygli á því að fyrirtæki bænda vinna að því eins og „önnur fyrirtæki að svara eftirspurn á markaði og hámarka hagnað sinn. Svo vill til að markaður með kjötafurðir hér á landi er afar virkur“ og segir Þröstur að á þessum markaði starfi stór „hópur fyrirtækja sem leitast við að gera það sama og kjötafurðastöðvarnar“ sem er að svara eftirspurn og hámarka hagnað sinn.

Hann segir að þetta blasi við þegar „skoðaður er fjöldi þeirra fyrirtækja sem tóku þátt í áðurnefndu tollkvótaútboði. Á meðal þeirra sem fengu hvað mest af tollkvóta voru stóru verslanakeðjurnar, heildsölur í Félagi atvinnurekenda á borð við Innnes og Ekruna og svo afurðastöðvar og tengdir aðilar, þar á meðal SS sem raunar er einnig innan vébanda Félags atvinnurekenda.“

Þröstur rifjar upp að áðurnefndur Ólafur hafi nýverið skrifað grein á Vísi og sagt þar að afurðastöðvarnar hafi „spilað á kerfi útboðs á tollkvóta, boðið hátt í kvótana til að sölsa þá undir sig, hækka verðið á innflutningi [kjöts] og hindra þannig samkeppni við sjálfar sig.“

Þröstur segir að „þetta er, eins og flest sem Ólafur segir um fyrirtæki bænda, stórundarlegur málflutningur“ og bætir því við að ef verð hækki á „tollkvótunum er ástæðan auðvitað sú að það er umframeftirspurn eftir kvótum eins og hér að ofan var lýst. Málflutningurinn byggir ekki á mis- eða vanskilningi Ólafs á lögmálum framboðs og eftirspurnar heldur þeirri staðreynd að Ólafur er í harðri sérhagsmunagæslu fyrir fyrirtækin í sínu félagi – þó að fólkið á bak við SS hljóti stundum að klóra sér í kollinum yfir flasfengi talsmannsins.“

Þröstur nefnir að í „Vísisgreininni tekur Ólafur mikinn snúning á því sem hann virðist telja stóru myndina á bak við umrætt tollkvótaútboð og tekst þar aftur og enn að halda því fram að bændur og fyrirtæki þeirra vinni gegn hagsmunum neytenda með því að hafa talað fyrir samkeppnisundanþágu kjötafurðastöðva í búvörulögunum. Þær undanþágur snúa raunar þvert á móti um möguleika bænda til þess að hagræða í þeim hluta rekstrar síns sem snýr að slátrun og vinnslu kjötafurða, þeim sjálfum og neytendum til hagsbóta.“

Að mati Þrastar skiptir það miklu máli að íslenskur landbúnaður búi að góðum „rekstrarskilyrðum því að hann tryggir fæðuöryggi í landinu“ og hann er klár á því að „málflutningur sérhagsmunaafla hérlendis gegn aukinni samvinnu og sameiningu fyrirtækja sem bændur eiga þátt í að reka í slátrun og vinnslu kjötafurða verður raunar hjákátlegur í ljósi boðaðs samruna tveggja afurðarisa í Evrópu, Arla og DMK Group, en við hann mun verða til stærsta mjólkurbú í Evrópu og það fjórða stærsta í heimi með áætlaðar árstekjur upp á nítján milljarða evra.“

Þröstur segir að gert sé ráð fyrir að samkeppniseftirlit ESB muni samþykkja þennan samruna og „ávinningurinn verður gríðarleg hagræðing í krafti stærðar hins sameinaða fyrirtækis“ sem er samvinnufélag um það bil „tólf þúsund mjólkurbænda í Evrópu, en hér heima sitjum við föst í sama farinu.“

Hann segir að lokum að það sé fyrir löngu komið gott af „afvegaleiðingu umræðunnar um íslenskan landbúnað á vegum sérhagsmunafélags atvinnurekenda.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna
Innlent

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna

Að sögn lögreglu var innbrotsþjófurinn svartklæddur
Finni ákærður fyrir 364 kynferðisbrot gegn börnum
Heimur

Finni ákærður fyrir 364 kynferðisbrot gegn börnum

Tugir látnir eftir hóteleldsvoða
Heimur

Tugir látnir eftir hóteleldsvoða

„Þetta er líklega allt að fara að enda í tárum“
Fólk

„Þetta er líklega allt að fara að enda í tárum“

Sindri Freyr týndur í Taílandi
Innlent

Sindri Freyr týndur í Taílandi

Selja sveitasetur á höfuðborgarsvæðinu
Myndir
Fólk

Selja sveitasetur á höfuðborgarsvæðinu

Steingrímur Ari Arason er látinn
Minning

Steingrímur Ari Arason er látinn

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar
Innlent

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

Mollý nú löglegt á Íslandi
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

Landið

Ekið á gangandi vegfaranda
Landið

Ekið á gangandi vegfaranda

Lögreglan leitar að vitnum
Séra Arnaldur blessar Árborg
Landið

Séra Arnaldur blessar Árborg

Dimma fannst á lífi í Rauðavatnsskógi
Landið

Dimma fannst á lífi í Rauðavatnsskógi

Dimma týnd á ný eftir átök við annan hrafn
Landið

Dimma týnd á ný eftir átök við annan hrafn

Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið
Landið

Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra
Landið

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra

Loka auglýsingu