1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

4
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

5
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

6
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

7
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

8
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

9
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

10
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

Til baka

Kjötborg kveður

Síðasti opnunardagur verslunarinnar laugardaginn 20. júní

Kjötborg
Skjáskot af ja.is

Hin kunna hverfisverslun Kjötborg við Ásvallagötu mun loka endanlega á morgun. Lokunin markar mikil tímamót í verslunarsögu Reykjavíkur en verslunin hefur verið starfrækt í núverandi húsnæði frá árinu 1981.

Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði er þungt hugsi í skoðanapistli á Vísi og segir að lokunin marki tímamót. Hann hafi fyrsta aldarfjórðung ævi sinnar búið í verkamannabústöðunum á Ásvallagötu í Reykjavík.

„Á þessum árum vandi ég komur mínar í hina rómuðu verslun Kjötborg, sem er staðsett á horni Ásvallagötu og Blómvallagötu. Mér er það minnisstætt sem barn og unglingur að geta rölt útí búð og látið skrifa kókómjólk, fingrakex og lakkrísrör á reikning hjá þeim bræðum Gunnari og Kristjáni Jónassonum, sem hafa rekið verslunina um áratugaskeið. Mamma býr enn á Ásvallagötu og fer reglulega í verslunina. Ég heimsótti kaupmennina á horninu í hinsta sinn í vikunni, en Kjötborg lokar endanlega á næstu dögum. Kristján var á vaktinni og tók vel á móti mér.“

Bræðurnir Gunnar Halldór og Kristján Aðalbjörn Jónssynir hafa staðið vaktina í versluninni um áratugaskeið og skipað stóran sess í nærsamfélagi Vesturbæjarins. Kjötborg er síðasta hverfisverslunin á þessum slóðum, en á áttunda og níunda áratugnum mátti finna um sex slíkar verslanir í nágrenninu.

Meira en einungis matvöruverslun

Auk þess að sinna hefðbundinni verslunarþjónustu hefur Kjötborg haft ríku hlutverki að gegna sem félagslegur samkomustaður, eða svokallað „þriðja rými“ hverfisins. Íbúar á öllum aldri hafa sótt þangað ríka þjónustulund, persónuleg samskipti og samfélag. Viðskiptahættir á borð við persónulegar skrifanir á reikninga og sérpantanir fyrir íbúa einkenndu reksturinn, sem margir telja að sé hverfandi menning í nútímasamfélagi ópersónulegra stórmarkaða og sjálfsafgreiðslulausna.

Samhliða breyttum tímum og hækkandi aldri kaupmannanna var húsnæðið selt fyrr á árinu. Samkvæmt tilkynningu frá rekstraraðilum verður síðasti opnunardagur verslunarinnar laugardaginn 20. júní.

„Önnur ástæða er sú að Kjötborg hefur sinnt hlutverki félagsmiðstöðvar hverfisins. Þangað hafa ungir sem aldnir vanið komur sínar, ekki einungis til að versla nauðsynjar, heldur til að sækja í félagsskap. Bræðurnir hafa ekki eingöngu verið kaupmenn heldur vinir og sálusorgarar þeirra sem hafa vanið komur sínar í verslunina. Í Kjötborg er eins og það hægi á tímanum og þar hefur alla tíð verið menningsem einkennist af hjálpsemi, greiðvikni og mennsku; gilda sem virðast vera á undanhaldi í hraðari og ópersónulegri tíðaranda nútímans.

Verslunin hefur þannig, sinnt hlutverki „þriðja rýmisins”, sem félagsfræðingurinn Ray Oldenburg skilgreindi sem mikilvæga staði utan heimilis og vinnu þar sem daglegt líf fólks fer fram. Í þriðja rýminu kjarnast nærsamfélagið. Þar hittir fólk nágranna sína, kynnist þeim, og skapar félagslegan auð í formi trausts, samhjálpar og vináttu. Slíkir staðir ala af sér samskipti sem gefa fólki tilfinningu fyrir að tilheyra samfélagi sem styrkir og nærir.“

Nýtt kaffihús áformið í húsnæðinu

Íbúar og viðskiptavinir hafa lýst yfir eftirsjá vegna lokunarinnar og segja missinn mikinn fyrir menningu hverfisins. Nýir eigendur hafa fest kaup á húsnæðinu og standa áform til þess að opna þar kaffihús með haustinu. Er stefnt að því að rýmið muni áfram þjóna sem samkomustaður fyrir íbúa í Vesturbænum, þó undir öðrum merkjum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju
Heimur

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju

Varað er við gríðarlegum hita á vinsælum ferðamannastöðum Íslendinga
William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans
Heimur

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Sex manna fjölskylda brennd til bana
Myndband
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Innlent

Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Loka auglýsingu