1
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

2
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

3
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

4
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

5
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

6
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

7
Peningar

Nýdönsk stofnar fyrirtæki

8
Innlent

Fingralangir fóru á stjá í Garðabæ

9
Heimur

Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar

10
Innlent

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi

Til baka

Farþegi lét öllum illum látum í tíu tíma flugi

Áhöfnin skipaði honum að láta af háttseminni en hann mun hafa hunsað þau fyrirmæli

Lufthansa
Lufthansa-flugvél
Mynd: TJDarmstadt/Wikipedia

Þrjátíu og þriggja ára karlmaður var handtekinn eftir að farþegaþota Lufthansa lenti í Frankfurt í Þýskalandi á mánudag. Maðurinn er sagður hafa sýnt af sér árásargjarna hegðun um borð og ítrekað hrist hurð flugvélarinnar þrátt fyrir fyrirmæli áhafnar um að hætta.

Atvikið átti sér stað um borð í flugi Lufthansa frá Bogotá í Kólumbíu til Frankfurt. Samkvæmt lögreglunni í Frankfurt vakti maðurinn athygli áhafnar vegna hegðunar sinnar á meðan vélin var á flugi.

Maðurinn er sagður hafa staðið upp úr sæti sínu og farið að hrista hurð flugvélarinnar ítrekað. Áhöfnin skipaði honum að láta af háttseminni en hann mun hafa hunsað þau fyrirmæli.

Að lokum gripu áhafnarmeðlimir inn í ásamt tveimur farþegum og tókst þeim að stöðva manninn. Atvikið varð ekki til þess að breyta þyrfti flugáætlun og hélt vélin áfram til Frankfurt.

Lögregla beið mannsins þegar vélin lenti og handtók hann. Vegna ástands hans var hann í kjölfarið fluttur á geðdeild sjúkrahúss.

Þýsk yfirvöld hafa hafið sakamálarannsókn vegna málsins. Brot af þessu tagi getur samkvæmt þýskum hegningarlögum varðað fangelsi frá sex mánuðum og allt að tíu árum.

Talsmaður Lufthansa staðfesti atvikið við þýska fjölmiðilinn RTL og sagði áhöfnina þegar í stað hafa gripið til nauðsynlegra ráðstafana svo flugið gæti haldið áfram samkvæmt áætlun.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í miðborginni
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í miðborginni

Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar
Heimur

Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu
Heimur

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi
Innlent

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi

Salmonella greindist í innfluttu kryddi
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“
Pólitík

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar
Pólitík

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október
Myndband
Menning

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang
Innlent

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang

Heimur

Farþegi lét öllum illum látum í tíu tíma flugi
Heimur

Farþegi lét öllum illum látum í tíu tíma flugi

Áhöfnin skipaði honum að láta af háttseminni en hann mun hafa hunsað þau fyrirmæli
Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael
Heimur

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael

Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar
Heimur

Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu
Heimur

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

Loka auglýsingu