1
Heimur

Hópi ölvaðra kvenna vísað úr flugi til Tenerife

2
Innlent

Landlæknir svipti sex lækna starfsleyfi eftir afhjúpun

3
Fólk

Eitt óvenjulegasta hús Íslands sett á sölu

4
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

5
Fólk

Stjórnarformaður Icelandair selur eitt dýrasta hús landsins

6
Innlent

Með milljónir í töskunum á leið úr landi

7
Innlent

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis

8
Fólk

Íslensk söngstjarna selur Konu

9
Innlent

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína

10
Fólk

Gagnrýnir fyrirkomulag á tónleikum Of Monsters and Men

Til baka

Fegurðardrottningin Brynn Carnesecca, látin aðeins 21 árs

„Brynn var bjartasta ljósið, en hún átti í djúpri innri baráttu.“

Brynn Carnesecca
Brynn CarneseccaBrynn á góðri stundu.
Mynd: Instagram

Brynn Carnesecca, sem keppti í fegurðarsamkeppni í Utah og var valin vinsælasta stúlkan (e. Miss Congeniality) af keppendum Ungfrú Utah árið 2025, lést 26. júlí, aðeins 21 árs að aldri. Fjölskylda hennar segir að hún hafi fallið fyrir eigin hendi.

Móðir hennar, Michele Carnesecca, sagði við minningarathöfn sem haldin var 28. júlí að hún vildi að dóttur hennar yrði minnst fyrir lífið sem hún lifði, en ekki hvernig því lauk.

„Hún batt enda á eigið líf, en hún er miklu meira en það sem kom fyrir hana,“ sagði Michele. „Hún var einstakur penni og bókaunnandi frá unga aldri.“

Brynn var krýnd Miss American Fork árið 2024 og var valin Miss Congeniality af keppendum Ungfrú Utah árið eftir. Hún hafði einnig áform um að taka þátt í Miss Provo-keppninni sem átti að hefjast síðar í ágúst.

Brynn Canesecca
Mynd: Instagram

Að sögn móður hennar var Brynn hæfileikarík og glaðlynd en lagði umfram allt áherslu á að hjálpa öðrum.

„Líf hennar snerist um að þjóna öðrum. Hún vann alltaf góðverk í kyrrþey,“ sagði Michele.

Brynn stofnaði meðal annars samtökin Envelopes of Hope, sem tengja saman íbúa og fanga í Utah með bréfaskriftum.

Systir hennar, Cate Carnesecca, minnist Brynn í hjartnæmri færslu á Instagram og segir hana hafa verið sína bestu vinkonu frá fæðingu.

„Við sögðum alltaf: „Við göngum í gegnum þetta líf saman,“ en því miður er það ekki lengur þannig,“ skrifaði hún.

Cate sagði að þær systur hefðu gert áætlanir um framtíðina, meðal annars að búa nálægt hvor annarri og ferðast um heiminn.

Hún sagði jafnframt að margir hefðu ekki áttað sig á þeim erfiðleikum sem Brynn glímdi við.

„Brynn var bjartasta ljósið, en hún átti í djúpri innri baráttu. Fyrir marga kom það sem algjört áfall því hún var ósérhlífnasta manneskja sem ég þekkti og setti alltaf þarfir annarra ofar sínum eigin.“

Að lokum hvatti hún fólk til að draga lærdóm af sögu systur sinnar.

„Látum sögu Brynn vera áminningu um að við vitum aldrei hvað annað fólk er að ganga í gegnum,“ skrifaði hún.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg

Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin
Heimur

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin

Stóð upp gegn fjölmiðlarisanum
„Við munum höfða mál gegn ríkinu“
Innlent

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn
Pólitík

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn

Ókunnugt lík fannst í kistu móður konu
Heimur

Ókunnugt lík fannst í kistu móður konu

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð
Heimur

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi
Innlent

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi

Ellefu særðir eftir skotárás í skóla
Heimur

Ellefu særðir eftir skotárás í skóla

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

Unglingur grunaður um að skipuleggja árás á skóla og mosku
Heimur

Unglingur grunaður um að skipuleggja árás á skóla og mosku

Stökk fyrir borð á skemmtiferðaskipi
Heimur

Stökk fyrir borð á skemmtiferðaskipi

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun
Innlent

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf
Innlent

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur
Innlent

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur

Heimur

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin
Heimur

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin

Stóð upp gegn fjölmiðlarisanum
Stökk fyrir borð á skemmtiferðaskipi
Heimur

Stökk fyrir borð á skemmtiferðaskipi

Ókunnugt lík fannst í kistu móður konu
Heimur

Ókunnugt lík fannst í kistu móður konu

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð
Heimur

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð

Ellefu særðir eftir skotárás í skóla
Heimur

Ellefu særðir eftir skotárás í skóla

Unglingur grunaður um að skipuleggja árás á skóla og mosku
Heimur

Unglingur grunaður um að skipuleggja árás á skóla og mosku

Loka auglýsingu