
Hæstiréttur Íslands
Mynd: Stjórnarráðið/Sigurður Ólafsson/Norden.org
Þann 27. mars auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingarblaði laust til umsóknar embætti dómara við Hæstarétt Íslands. Umsóknarfrestur rann út 13.apríl síðastliðinn.
Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara á allra næstu dögum. Stefnt er að því að ákvörðun um skipun liggi fyrir hið fyrsta eftir að umsögn dómnefndar berst ráðherra.
Umsækjendur eru eftirtaldir:
- Aðalsteinn E. Jónasson landsréttardómari,
- Ásgerður Ragnarsdóttir landsréttardómari,
- Eiríkur Jónsson landsréttardómari,
- Eyvindur G. Gunnarsson landsréttardómari.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment