1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

4
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

5
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

6
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

7
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

8
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

9
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

10
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Til baka

Fjórar konur saka Jared Leto um kynferðisbrot

„Þetta gerðist fyrir 25 árum ... og hann hefur komist upp með það“

Jared Leto
Jaret LetoLeto er nú sakaður um kynferðisbrot
Mynd: Instagram

Fjórar konur saka bandaríska leikarann og tónlistarmanninn Jared Leto um refsiverða kynferðislega háttsemi í nýrri heimildarmynd BBC, Jared Leto: Hollywood's Dark Secret. Konurnar segja meint brot hafa átt sér stað þegar þær voru á unglingsaldri.

Ein kvennanna segir að hún hafi verið 17 ára þegar Leto hafi beitt hana kynferðisofbeldi á baðherbergi mótels. Önnur segir að hann hafi hótað henni kynferðisofbeldi þegar hún var ein með honum á hótelherbergi, 19 ára gömul.

Þriðja konan heldur því fram að hún hafi verið 17 ára þegar hún átti í kynferðissambandi við Leto í Kaliforníu, þar sem lögaldur til kynferðislegra samskipta er 18 ár.

Fjórða konan hélt því fram að Leto hefði tælt hana, og lýsti kynferðislega grófum símtölum hans til hennar þegar hún var 16 ára. Hún segir hann meðal annars hafa lagt til að þau myndu sofa saman. Konan segist einnig hafa verið beðin um að skrifa undir þagnarsamning, en hafi hafnað því.

Alls ræddu tíu konur við BBC vegna heimildarmyndarinnar. Sumar þeirra halda því fram að atvik hafi átt sér stað þegar þær voru aðeins 14 ára gamlar, á tímabilinu 2002 til 2016.

Ein þeirra segir að það hafi tekið hana áratugi að segja sögu sína.

„Þetta gerðist fyrir 25 árum ... og hann hefur komist upp með það,“ segir hún í myndinni.

Tveir menn sem störfuðu með hljómsveit Letos, 30 Seconds to Mars, segja jafnframt að hann hafi stundum boðið unglingsstúlkum baksviðs, í búningsherbergi sitt eða heim til sín þar sem hann vann að tónlist.

„Ég held að öllum hafi fundist aldursmunurinn einfaldlega of mikill,“ segir annar þeirra.

Leto er 54 ára gamall og hefur átt farsælan feril sem bæði tónlistarmaður og leikari. Hann hlaut Óskarsverðlaun sem besti leikari í aukahlutverki árið 2014 fyrir leik sinn í Dallas Buyers Club og er einnig þekktur fyrir hlutverk sitt sem Jókerinn í Suicide Squad.

Árið 2025 vísaði Leto á bug ásökunum um kynferðisbrot eftir að nokkrar konur höfðu stigið fram með sambærilegar frásagnir. Þá greindi Air Mail frá því að níu konur hefðu sakað hann um óviðeigandi hegðun þegar þær voru á unglingsaldri.

Leto hefur ekki verið ákærður fyrir þau brot sem fjallað er um í heimildarmynd BBC.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife
Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife

Karlmaður fannst látinn á strönd í Las Galletas.
Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

Íslenskur maður ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot
Innlent

Íslenskur maður ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot

Ákærður fyrir að stela strætisvagni
Innlent

Ákærður fyrir að stela strætisvagni

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg
Heimur

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll
Myndir
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

Forvitinn um ólæsta bíla og kom með óvenjulega afsökun
Innlent

Forvitinn um ólæsta bíla og kom með óvenjulega afsökun

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife
Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife

Karlmaður fannst látinn á strönd í Las Galletas.
Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg
Heimur

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Loka auglýsingu