Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

Konan hafði fundið fyrir óþægindum í kvið

Lítið barn eftir fæðingu
Lítið barn eftir fæð­ingu Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Christian Bowen/Unsplash

41 árs kona fékk heldur betur óvæntar fréttir þegar hún komst að því að hún væri ólétt aðeins nokkrum klukku­stundum áður en hún eignaðist son.

Konan, Sammy, hafði fundið fyrir óþægindum í kvið og taldi sjálf að um gæti verið að ræða kviðslit eða tognun eftir reglulegar kvið­æfingar. Eftir skoðun tveggja lækna kom hins vegar upp grunur um að hún gæti verið barns­hafandi.

Samkvæmt breska dagblaðinu Mirror hafði Sammy ekki haft blæðingar í nokkra mánuði en taldi það tengjast breytinga­skeiði. Hún hafði jafnframt misst mikið í þyngd eftir maga­bandsaðgerð og því hafði lítið sem ekkert sést á henni að hún gengi með barn.

Fyrsta þungunar­prófið á lækna­stofunni reyndist neikvætt en annar læknir taldi sig sjá daufa línu á prófinu og ráðlagði henni að taka annað próf heima. Það reyndist jákvætt.

Sammy gerði sér þó enn enga grein fyrir því að meðgangan væri komin svo langt.

Fór á bráðamóttöku vegna krampa

Síðar sama kvöld fékk Sammy krampa í kviðinn og leitaði á bráða­móttöku. Þar var gerð ómskoðun og kom fljótlega í ljós að barn var í móður­kviði.

„Hann gerði ómskoðunina og byrjaði að segja: „Þarna er fótleggur. Þarna er hand­leggur. Þarna er bakið,““ sagði Sammy um augna­blikið þegar læknir skoðaði hana.

Um klukkan sjö morguninn eftir sendi hún Triston McKend, 38 ára sambýlis­manni sínum, skilaboð og sagði honum að hún væri ólétt.

Sammy taldi fyrst að hún gæti verið skammt komin á leið og óttaðist jafnvel að hún væri að missa fóstrið. Starfs­fólk sjúkra­hússins færði henni hins vegar enn óvæntari tíðindi.

„Svo kom önnur kona inn og sagði: „Þú ert komin af stað í fæðingu.“ Ég sagði: „Fyrir­gefðu, nei, það getur ekki verið.“ Hún svaraði: „Jú, barnið er að koma.““

Sonurinn fæddist fimm tímum síðar

Aðeins fimm klukku­stundum eftir að Sammy kom á sjúkra­húsið fæddi hún heil­brigðan dreng, Noah, sem vó rúmlega 3,6 kíló.

Hún segir að það hafi tekið tíma að átta sig á því sem hafði gerst og að tengslin við barnið hafi ekki myndast samstundis vegna þess hve skyndi­lega hann kom inn í líf hennar.

„Ég hugsaði eiginlega bara: Guð minn góður, er hann raun­verulegur? Ég gat ekki meðtekið þetta,“ sagði hún.

Sammy telur mikið þyngdartap eftir maga­bandsaðgerð hafa átt þátt í því að meðgangan uppgötvaðist ekki. Hún hafði misst um 63 kíló og segir þyngd sína aðeins hafa aukist um rúmt kíló frá því í maí þar til hún fæddi.

Hún hafði auk þess verið mjög virk alla meðgönguna. Hún fór meðal annars á tónleika, spilaði fótbolta, fór í fjögurra klukku­stunda hjólaferð og tók þátt í vatns­leikfimi aðeins tólf klukku­stundum áður en fæðingin hófst.

Triston hyggst nú flytja tíma­bundið til Bournemouth til að aðstoða Sammy við umönnun Noahs, sem kom foreldrum sínum svo sannarlega á óvart.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs