1
Innlent

Ráðist gegn rekstri Fúsa handboltakappa

2
Innlent

Ingunn sögð hafa kýlt fórnarlamb sitt með hnúajárni

3
Peningar

17 tekjuhæstu Reykvíkingarnir opinberaðir

4
Peningar

Laun þekktra Íslendinga sem heita dýranöfnum

5
Fólk

Guðmundur Felix búinn í aðgerð

6
Peningar

Kranakall skattakóngur 2025 á Íslandi

7
Innlent

Þorvaldur kvartaði undan stýrivöxtum í 200 þúsund króna bol

8
Innlent

Halal-slátrun heldur áfram á Íslandi

9
Peningar

Eyfi lifir í draumi í nýju fyrirtæki

10
Innlent

Innkalla sólgleraugu sem geta aukið slysahættu

Til baka

Frá Kópavogi til Síerra Leóne

Besta sunnudagskvöld haustsins

Barnaheill tónleikar
Styrktartónleikar Barnaheilla
Mynd: Barnaheill

Tónlistarfólkið Mugison, Ellen Kristjánsdóttir, KK, Ragnheiður Gröndal, Pétur Ben og Hipsumhaps koma fram á tónleikum Barnaheilla í Salnum í Kópavogi, sunnudaginn 6. september kl. 20:00, til að safna fyrir nýjum grunnskóla í afskekkta þorpinu Macca í Síerra Leóne.

Tónleikarnir eru lokahnykkur á árlegri haustsöfnun Barnaheilla – Save the Children fyrir alþjóðleg verkefni samtakanna. Söfnunin hefst fimmtudaginn 27. ágúst og lýkur með tónleikunum sunnudagskvöldið 6. september.

Miðaverðið rennur óskert til að fjármagna skólabyggingu í Macca, og mun gjörbylta lífi og framtíð barna í þorpinu sem fá nú tækifæri til menntunar.

Barnaheill starfa með börnum í fátækasta héraði Síerra Leóne

Barnaheill, með stuðningi frá utanríkisráðuneytinu, hafa starfað í Pujehun-héraði frá árinu 2021 með sérstaka áherslu á menntun og að vernda börn gegn ofbeldi. Pujehun er eitt fátækasta og strjálbýlasta hérað í Síerra Leóne. Þar er skortur á heilbrigðis- og menntaþjónustu, vegir eru afar torfærir og meirihluti íbúa hefur aldrei sótt skóla.

Sjálfstæð úttekt á verkefni Barnaheilla í héraðinu hefur sýnt fram á framúrskarandi árangur. Á síðasta ári var því ákveðið að útvíkka verkefnið og fjölga samstarfsþorpum til að ná til fleiri jaðarsettra barna og skapa þeim betri skilyrði til náms og þroska.

Loksins skóli fyrir börn í Macca

Ákveðið var að ráðast í byggingu skólans í Macca eftir vettvangsheimsókn Barnaheilla til Síerra Leóne haustið 2025. Þá kom í ljós að enginn skóli væri til staðar fyrir börn í þorpinu, og aðstaða til náms var því óásættanleg.  

Framkvæmdir hófust þegar í byrjun þessa árs og nú er verið að leggja lokahönd á frágang svo börnin geti hafið nýtt skólaár í nýja skólanum. Sérstaklega hefur verið hugað að aðgengi að byggingunni svo öll börn geti sótt skólann, og einnig var borað fyrir vatni og gerður brunnur sem nýtist öllum íbúum í Macca og nágrenni.

Barnaheill eru afar þakklát tónlistarfólkinu og öllum sem leggja þessu mikilvæga verkefni lið. Hægt er að kaupa miða á tónleikana á Tix https://tix.is/event/22126/styrktartonleikar-barnaheilla-byggjum-skola-i-sierra-leone.

Tónleikarnir verða haldnir sunnudaginn 6. september kl. 20:00 í Salnum, Hamraborg 6 í Kópavogi.

Einnig er hægt að styrkja verkefnið með beinum framlögum á bankareikning 0357-26-2802

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
RÚV ræður reynslubolta
Innlent

RÚV ræður reynslubolta

Ekki einn heldur tvo
Örn Guðmundsson ráðinn framkvæmdastjóri Háskóla Íslands
Innlent

Örn Guðmundsson ráðinn framkvæmdastjóri Háskóla Íslands

Nýtt Hafnarhús rís við Viðeyjarsund
Innlent

Nýtt Hafnarhús rís við Viðeyjarsund

Starfsmenn sáu ekki áverka á fórnarlambinu
Innlent

Starfsmenn sáu ekki áverka á fórnarlambinu

Jakob játar áreitni í garð samstarfskonu
Innlent

Jakob játar áreitni í garð samstarfskonu

Átta létust þegar flugvél fórst í Bandaríkjunum
Heimur

Átta létust þegar flugvél fórst í Bandaríkjunum

Þrír látnir í kjölfar hermannaveikifaraldurs í Austurríki
Heimur

Þrír látnir í kjölfar hermannaveikifaraldurs í Austurríki

Þorvaldur kvartaði undan stýrivöxtum í 200 þúsund króna bol
Myndband
Innlent

Þorvaldur kvartaði undan stýrivöxtum í 200 þúsund króna bol

17 tekjuhæstu Reykvíkingarnir opinberaðir
Peningar

17 tekjuhæstu Reykvíkingarnir opinberaðir

Selja frábært einbýli með einstöku útsýni
Myndir
Fólk

Selja frábært einbýli með einstöku útsýni

Nýnasistar ofsóttu tannlæknanema í Reykjavík
Innlent

Nýnasistar ofsóttu tannlæknanema í Reykjavík

Ferðamaður kom á lögreglustöðina og tilkynnti glæp
Innlent

Ferðamaður kom á lögreglustöðina og tilkynnti glæp

Menning

Frá Kópavogi til Síerra Leóne
Menning

Frá Kópavogi til Síerra Leóne

Besta sunnudagskvöld haustsins
Dynomatic og Bjössi Basti sameina krafta sína í nýju lagi
Myndband
Menning

Dynomatic og Bjössi Basti sameina krafta sína í nýju lagi

„Stundum borgar sig að dreyma stórt“
Viðtal
Menning

„Stundum borgar sig að dreyma stórt“

Draumurinn rættist í Grafarvogi
Menning

Draumurinn rættist í Grafarvogi

Röggu Gröndal er alveg sama hvað
Menning

Röggu Gröndal er alveg sama hvað

Loka auglýsingu