1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

4
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

5
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

6
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

7
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

8
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

9
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

10
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Til baka

Gekk í skrokk á barnsmóður sinni og ók ítrekað fullur

Vínandamagn í blóði hans mældist í flestum tilvikum mjög hátt

Hvalfjarðargöng
HvalfjarðargöngÓk meðal annars fullur í göngunum.
Mynd: Víkingur

Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt ónafngreindan karlmann til sjö mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir röð alvarlegra umferðarlagabrota og líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður. Jafnframt var hann sviptur ökurétti ævilangt frá 27. nóvember 2025.

Málið var rekið á grundvelli fjögurra ákæra sem sameinaðar voru til meðferðar fyrir dómi. Karlmaðurinn játaði skýlaust öll brotin við þingfestingu málsins og var það því tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu.

Samkvæmt dómnum framdi maðurinn alls tíu umferðarlagabrot á árunum 2024 til 2026. Þar af var hann sjö sinnum staðinn að akstri undir áhrifum áfengis. Vínandamagn í blóði hans mældist í flestum tilvikum mjög hátt, allt frá 1,56 prómillum upp í 2,58 prómill. Í einu tilvikanna ók hann jafnframt sviptur ökurétti.

Auk ölvunarakstrar var hann sakfelldur fyrir ítrekuð hraðakstursbrot. Meðal annars ók hann á 143 km hraða þar sem hámarkshraði var 90 km á klukkustund og einnig á 111 km hraða á svæði þar sem sami hámarkshraði gilti.

Þá var maðurinn sakfelldur fyrir líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður. Samkvæmt ákæru tók hann harkalega í konuna, sló hana í höfuð og andlit, kýldi hana í búk, greip fast um handleggi, úlnliði og ökkla og dró hana fram úr rúmi. Við árásina hlaut hún meðal annars mar, skrámur, bólgur og eymsli á líkama.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að maðurinn hefði áður hlotið ítrekaðar refsingar fyrir sambærileg umferðarlagabrot, meðal annars ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti. Dómurinn taldi því um að ræða ítrekun sem kallaði á þyngri refsingu.

Til málsbóta var litið til þess að hann játaði brotin skýlaust, hefði leitað sér aðstoðar, væri í sálfræðimeðferð og hefði verið edrú um nokkurt skeið. Þrátt fyrir það taldi dómurinn brotin svo alvarleg og sakaferil hans slíkan að ekki væru efni til að skilorðsbinda fangelsisrefsinguna.

Maðurinn var jafnframt dæmdur til að greiða tæplega 1,4 milljónir króna í sakarkostnað, þar af 494.760 krónur í málsvarnarlaun verjanda síns og 900.392 krónur í annan kostnað vegna rannsóknar málsins.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Eva Hauksdóttir tjáir sig um frávísun í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem ákærður var fyrir að valda dauða móður hennar.
Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

Ísraelskir ráðherrar leiddu kröfugöngu um nýjar landnemabyggðir á Gaza
Myndband
Heimur

Ísraelskir ráðherrar leiddu kröfugöngu um nýjar landnemabyggðir á Gaza

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin
Myndband
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

Sprenging skók alríkisbyggingu í New York
Myndband
Heimur

Sprenging skók alríkisbyggingu í New York

Ellefu ára drengur lést í fjallgöngu með föður sínum
Heimur

Ellefu ára drengur lést í fjallgöngu með föður sínum

Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Eva Hauksdóttir tjáir sig um frávísun í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem ákærður var fyrir að valda dauða móður hennar.
Ofurverð á Íslandi fær fólk til að hlæja og gráta
Innlent

Ofurverð á Íslandi fær fólk til að hlæja og gráta

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Markús endaði á bráðamóttöku eftir árás nágrannans
Innlent

Markús endaði á bráðamóttöku eftir árás nágrannans

Vinsæl leikföng tekin af markaði vegna köfnunarhættu
Innlent

Vinsæl leikföng tekin af markaði vegna köfnunarhættu

Loka auglýsingu