Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Geymdi lík föður síns í hótelfrysti

Dóttir mannsins sagðist ekki hafa séð föður sinn árum saman

Mystras á Pelópsskaga
Mystras á Pelóps­skaga Mynd: I, Sailko/Wikipedia

55 ára karlmaður hefur verið hand­tekinn í Mystras á Pelópsskaga í Grikk­landi eftir að lík föður hans fannst í frysti­kistu í kjallara yfir­gefins hótels en greint er frá þessu í grískum fjöl­miðlum.

Maðurinn er grunaður um að hafa leynt andláti föður síns í tvö og hálft ár til þess að geta áfram tekið við lífeyris­greiðslum hans.

Málið komst upp eftir að lögreglan í Lakoníu fékk upplýsingar um að faðir mannsins, sem fæddist árið 1936, hefði ekki sést um langt skeið. Sonurinn var kallaður til skýrslu­töku og hélt því fram að faðir hans hefði flutt til Aþenu og byggi þar.

Lögregla hafði í kjölfarið samband við systur mannsins, sem búsett er í Aþenu. Hún sagðist ekki hafa séð föður sinn árum saman og að síðast þegar hún vissi hefði hann búið hjá bróður hennar.

Lögreglu­menn fóru þá ásamt dómara í lokað hótel í eigu 55 ára mannsins, en hann hafði sjálfur notað húsnæðið sem heimili. Við leit í kjallara hússins fannst lík föðurins í frysti­kistu. Einnig fannst þar loft­skammbyssa.

Eftir hand­tökuna viðurkenndi maðurinn að faðir hans hefði látist af náttúru­legum orsökum fyrir um tveimur og hálfu ári. Hann sagðist hafa ákveðið að tilkynna ekki um andlátið svo hann gæti haldið áfram að fá lífeyris­greiðslur föður síns.

Réttar­meina­fræðingur og tækni­deild lögreglunnar í Spörtu voru kölluð á vettvang og hefur verið fyrir­skipað að krufning fari fram til að staðfesta dánar­orsök mannsins.

Rannsókn málsins er í höndum rann­sóknar- og saka­máladeildar lögreglunnar í Spörtu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs