1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir að losa þig við úr geymslunni

3
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

4
Innlent

Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu

5
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

6
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

7
Innlent

Reyndi að lauma sér til Íslands með fölsuðu skilríki

8
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

9
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

10
Innlent

Fjórir bílar í alvarlegu umferðarslysi

Til baka

Grunnskólakennari barðist af hörku við hákarl

„Þetta var eins og að berjast við risaeðlu. Hann var svo stór að það var eins og að kýla múrsteinsvegg“

Leah Stewart
Leah StewartEr með dóttur sína í fanginu
Mynd: Leah Stewart

Ástralskur grunnskólakennari, Leah Stewart, hefur lýst því hvernig hún barðist fyrir lífi sínu þegar stór hákarl réðst á hana við Coogee-strönd í Sydney í júní. Stewart missti hluta vinstri handleggs í árásinni og var haldið sofandi í öndunarvél í um tíu daga.

Stewart var í sjósundi að morgni 13. júní þegar hún varð vör við hákarlinn. Vitni töldu að um allt að fjögurra metra langan hvíthákarl hefði verið að ræða.

Í viðtali við 60 Minutes lýsir Stewart því að hún hafi fyrst séð stóran ugga skammt frá annarri sundkonu. Í fyrstu taldi hún að um höfrung væri að ræða en áttaði sig fljótt á hættunni.

Skömmu síðar nálgaðist hákarlinn hana. Stewart óttaðist að hann myndi bíta hana í andlitið og ákvað því að slá til hans.

„Ég hugsaði: Hvaða útlim er ég tilbúin að missa? Ég er rétthent og ákvað því að slá með vinstri,“ sagði Stewart.

Hákarlinn beit í vinstri framhandlegg hennar og olli þar gríðarlegum áverkum. Í kjölfarið beit hann í vinstra læri hennar og dró hana undir yfirborðið.

Stewart segist þá hafa hugsað um unga dóttur sína og ákveðið að berjast áfram. Hún sneri sér að hákarlinum og sló hann ítrekað þar til hann sleppti takinu.

„Þetta var eins og að berjast við risaeðlu. Hann var svo stór að það var eins og að kýla múrsteinsvegg,“ sagði hún.

Stewart komst aftur upp á yfirborðið og var aðstoðuð í land af brettamanninum Charlie Verco, sem var staddur skammt frá. Sjúkraflutningamenn hlúðu að henni á ströndinni áður en hún var flutt á sjúkrahús.

Stewart, sem er á fertugsaldri, var haldið í dái eftir árásina. Læknar þurftu að fjarlægja hluta vinstri handleggs hennar vegna áverkanna.

Árásin kemur í kjölfar nokkurra alvarlegra hákarlaárása í Ástralíu á þessu ári. Vísindamenn hafa meðal annars velt því upp hvort hækkandi sjávarhiti sé að breyta göngum hákarla og kunni þannig að hafa áhrif á tíðni árekstra þeirra við fólk.

Samkvæmt áströlskum gagnagrunni hafa nærri 1.300 atvik þar sem hákarlar hafa komist í snertingu við fólk verið skráð við Ástralíu frá árinu 1791. Meira en 260 þeirra hafa reynst banvæn.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu