Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Guðmundur í Baggalút kominn með nýja vinnu

Guðmundur Pálsson
Guð­mundur Pálsson Mynd: Blaðamannafélag Íslands

Blaðamanna­félag Íslands hefur ráðið Guðmund Pálsson í starf verkefna- og þróunar­stjóra félagsins. Hann mun meðal annars leiða ný verkefni í samræmi við stefnu stjórnar félagsins og vinna að fræðslu og nýliðun.

Fram kemur í tilkynningu frá Blaðamanna­félaginu að ráðningin sé liður í því að efla starfsemi félagsins enn frekar og styðja við fram­tíðarsýn þess um öflugt fag- og stéttar­félag blaða­manna. Jafnframt sé markmiðið að stuðla að sterkara umhverfi fyrir blaða­mennsku hér á landi.

Guðmundur hefur um tuttugu ára reynslu af störfum við fjölmiðla. Hann hóf fjölmiðla­feril sinn sem blaða­maður á DV en starfaði síðar hjá RÚV, þar sem hann kom að öllum miðlum stofnunarinnar. Lengst af starfaði hann sem dagskrár­gerðarmaður í útvarpi.

Guðmundur hefur einnig reynslu af upplýsinga­miðlun og starfaði meðal annars fyrir Hafrannsókna­stofnun og Íslenska erfða­greiningu.

Hann er með BA-próf í íslensku frá Háskóla Íslands og meistara­próf í verkefna­stjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.

Guðmundur er jafnframt einn stofnenda Baggalúts. Starfsemi Baggalúts hefur í gegnum tíðina verið fjöl­breytt og er nafnið meðal annars þekkt fyrir samnefnda hljómsveit og tónleika­hald. Þá hélt hópurinn um árabil úti vinsælli heimasíðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“