
Héraðsdómur Reykjavíkur sá um málið
Mynd: Brynhildur Jensdóttir
Hafnfirðingurinn Marko Brlek hefur verið dæmdur í fangelsi af Héraðsdómi Reykjavíkur en dómurinn birtist fyrir skömmu á vef dómstólsins.
Hann var ákærður fyrir líkamsárás með því að hafa, aðfaranótt mánudagsins 5. ágúst 2024, utandyra við skemmtistaðinn Röngten við Hverfisgötu í Reykjavík, veist með ofbeldi að manni, og slegið hann í andlitið með flötum lófa, með þeim afleiðingum að hann hlaut glóðarauga á báðum augum og nefbrot.
Brlek mætti ekki þrátt fyrir að hafa verið boðaður en hann hafði ekki áður gerst sekur um refsivert athæfi.
Hann var dæmdur í 60 daga fangelsi en dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…