
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Hafstein Þór Harðarson í þriggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ítrekað hótað lögreglumanni lífláti þegar lögreglumaðurinn var við skyldustörf á heimili hans í Reykjavík að kvöldi 9. júlí 2025.
Málið var tekið til dóms án viðveru ákærða, sem mætti ekki við þingfestingu þrátt fyrir að hafa verið löglega boðaður.
Dómurinn byggir á rannsóknargögnum málsins og taldi héraðsdómur sannað að Hafsteinn hefði gerst sekur um að hafa ítrekað hótað lögreglumanninum lífláti.
Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til sakaferils ákærða. Samkvæmt sakavottorði hafði hann áður hlotið refsingu fjórum sinnum. Árin 2019 og 2022 var hann dæmdur til sekta og sviptingar ökuréttar vegna umferðarlagabrota. Þá kemur fram í dómnum að hann hafi árið 2020 hlotið dóm á Spáni fyrir líkamsmeiðingar, þar sem hann var sviptur skotvopnaleyfi í tvö ár og dæmdur til 40 daga samfélagsþjónustu.
Í apríl 2024 hlaut Hafsteinn tveggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir líkamsárás og umferðarlagabrot. Með brotinu sem nú var dæmt fyrir taldi héraðsdómur að hann hefði rofið það skilorð. Því var ákveðið að dæma hann til sameiginlegrar refsingar samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga.
Niðurstaða dómsins var sú að Hafsteinn Þór Harðarson skyldi sæta þriggja mánaða fangelsi. Dómurinn taldi ekki rétt að skilorðsbinda refsinguna og enginn sakarkostnaður féll til við meðferð málsins.