1
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

2
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

3
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

4
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

5
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

6
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

7
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

8
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

9
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

10
Innlent

Endaði á sjúkrahúsi eftir slys

Til baka

Hildur rifjar upp áfallið

„Lífið er núna – og það hefur aldrei verið betra“

Hildur Björnsdóttir oddviti
Hildur BjörnsdóttirHildur er einlæg í nýrri Facebookfærslu

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, rifjar upp erfiðan kafla í lífi sínu í einlægri Facebook-færslu í dag. Þar segir hún frá því að í dag séu liðin tíu ár frá því hún greindist með eitlakrabbamein, aðeins sjö dögum eftir að hún eignaðist dóttur sína.

Hildur segir að læknar hafi fundið 16 sentímetra stórt æxli í miðmæti sem reyndist vera eitlakrabbamein. Greiningin hafi verið mikið áfall en hún hafi strax ákveðið að láta sjúkdóminn ekki skilgreina sig.

„Það var óneitanlega áfall en ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu – læra af reynslunni en láta hana ekki skilgreina mig,“ skrifar hún.

Hún viðurkennir að þrátt fyrir að hafa almennt verið jákvæð og bjartsýn hafi hún oft fundið fyrir ótta. Sá ótti hafi þó kennt henni mikilvæga lexíu um hversu dýrmætur tíminn sé og hvað skipti raunverulega máli í lífinu.

„Þó ég hafi almennt verið bæði jákvæð og bjartsýn, þá varð ég stundum hrædd og óttaslegin. Í þessum ótta lá þó mikilvægasti lærdómurinn - hvað tíminn sem við eigum er naumur og verðmætur - og hvað það er sem maður raunverulega lifir fyrir.“

Hildur rifjar upp augnablikið þegar hún fékk greininguna á gluggalausu herbergi á bráðamóttökunni 27. júlí 2016 og segist þá aldrei hafa getað ímyndað sér hvernig líf hennar myndi þróast næstu tíu árin.

Hún segir að reynslan hafi orðið til þess að hún hafi ákveðið að lifa lífinu til fulls, takast á við það sem hræðir hana og láta drauma sína rætast án þess að bíða.

„Ekki seinna, heldur strax,“ skrifar hún.

Í lok færslunnar segir Hildur að hún finni mikinn tilgang í hlutverki sínu sem móðir fjögurra barna og borgarstjóri Reykjavíkur. Þá segist hún einnig vera gift „besta manninum“.

„Lífið er núna – og það hefur aldrei verið betra,“ skrifar Hildur að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kötturinn Sigurlaug lét níu lífin reyna á sig
Innlent

Kötturinn Sigurlaug lét níu lífin reyna á sig

Hildi sagt upp hjá borginni
Ný frétt
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

María Lilja rekin af Samstöðinni
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm
Innlent

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO
Myndir
Innlent

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu
Heimur

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

„Það kom þarna í ljós að ég myndi ekki hafa afgerandi hæfileika á þessu sviði“
Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur
Myndir
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

„Við erum ekki öðruvísi fólk“
Fólk

„Við erum ekki öðruvísi fólk“

Einstök paradís úti á landi komin á sölu
Myndir
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

Loka auglýsingu