1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir að losa þig við úr geymslunni

3
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

4
Innlent

Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu

5
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

6
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

7
Innlent

Reyndi að lauma sér til Íslands með fölsuðu skilríki

8
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

9
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

10
Innlent

Fjórir bílar í alvarlegu umferðarslysi

Til baka

Höfuð fórnarlambanna hafa aldrei fundist

Breskur raðmorðingi sem bútaði fórnarlömb sín niður er látinn

John Sweeney
„Skurðamorðinginn“ John Sweeney
Mynd: Facebook

Breski raðmorðinginn John Sweeney, sem var þekktur undir nafninu „skurðamorðinginn“ (e. the canal killer), er látinn 69 ára að aldri. Hann lést úr krabbameini á HMP Whitemoor fangelsinu í Cambridgeshire þann 14. ágúst, samkvæmt frétt breska blaðsins The Times. Sweeney tók leyndarmálið um afdrif höfuð fórnarlamba sinna með sér í gröfina.

Hrottaleg morð og limlestingar

Sweeney hlaut lífstíðardóm árið 2011 fyrir að myrða tvær fyrrverandi kærustur sínar, þær Melissu Halstead og Paulu Fields. Hann bútaði lík þeirra niður og fleygði líkamshlutunum í skipaskurði í Lundúnum og Hollandi:

Melissa Halstead (33 ára) var bandarísk fyrirsæta sem Sweeney myrti árið 1990. Líki hennar var hent í skurð í Rotterdam. Hún var ekki auðkennd fyrr en 18 árum síðar með DNA-tækni. Höfuð hennar og hendur hafa aldrei fundist.

Líkamsleifar Paula Fields (31 árs) fundust í sex ferðatöskum í Regent's-skurðinum í Lundúnum árið 2001. Höfuð, hendur og fætur hennar hafa aldrei fundist.

Saksóknarar sögðu á sínum tíma að Sweeney, sem var húsasmiður, hefði vísvitandi fjarlægt höfuð og hendur kvennanna til að gera lögreglu ókleift að bera kennsl á þær. Á heimili hans fundust hrollvekjandi málverk og ljóð þar sem hann montaði sig af ofbeldisverkum og kallaði sig „Hársvörðasafnarann“ (e. the Scalp Hunter).

Komst upp um hann eftir axarárás

Sweeney var ekki tengdur við hvarf kvennanna fyrr en hann var handtekinn fyrir lífshættulega axarárás á þriðju kærustuna, hjúkrunarfræðinginn Delia Balmer.

Balmer lifði árásina af eftir að nágranni kom henni til bjargar. Sweeney hafði áður haldið henni fangaðri í viku, bundið hana við rúm og beitt hana grófu ofbeldi. Balmer skrifaði síðar endurminningabók um skelfinguna, sem sjónvarpsstöðin ITV aðlagaði í þáttaröðina Until I Kill You árið 2024.

Grunaður um fleiri morð

Lögreglan óttast að fórnarlömb Sweeneys séu fleiri. Enn er lýst eftir tveimur suður-amerískum konum sem voru í sambandi við hann seint á tíunda áratugnum og hurfu sporlaust. Lögreglan veit aðeins skírnarnöfn þeirra, Irani frá Brasilíu og Maria frá Kólumbíu og vinnur með ræðismannsskrifstofum að því að hafa uppi á þeim.

Talsmaður bresku fangelsismálastofnunarinnar segir að embætti umboðsmanns fanga rannsaki nú andlát Sweeneys, eins og lög gera ráð fyrir þegar fangar deyja í haldi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu