1
Minning

Flosi Kristinsson er fallinn frá

2
Peningar

Helgi í Góu verður ríkari

3
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

4
Heimur

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist

5
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

6
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir að losa þig við úr geymslunni

7
Fólk

Selja höll í Garðabæ með þreföldum bílskúr

8
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

9
Innlent

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi

10
Innlent

Íslandsferð Hönnuh tók óvænta stefnu þegar hún var handtekin

Til baka

Ísland valdeflir stúlkur í Malaví

Þátttakendur fá fjölbreytta fræðslu um kyn- og frjósemisheilbrigði

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra – Mynd: Steph Glinski
Þorgerður Katrín segir samninginn ánægjuefniSamtökin Go Fund a Girl Child koma að málinu

Íslensk stjórnvöld hafa gert samstarfssamning við félagasamtökin Go Fund a Girl Child um valdeflingu stúlkna og ungra kvenna í viðkvæmri stöðu í Mangochi, samstarfshéraði Íslands í Malaví en stjórnarráðið greinir frá þessu.

Verkefnið ber heitið Empower to Transform og er markmið þess að skapa umhverfi sem styður við stúlkur og ungar konur í dreifbýli og valdefla svo þær geti orðið virkar í samfélaginu. 

Samkvæmt stjórnarráðinu eru samtökin Go Fund a Girl Child feminísk grasrótarsamtök sem voru stofnuð árið 2015 og eru rekin af ungum konum í Mangochi. Samtökin horfa sérstaklega til þess að styðja við stúlkur og ungar konur sem hafa hætt í skóla, orðið fyrir ofbeldi, gifst ungar, orðið mæður ungar eða eru í annars konar viðkvæmri stöðu. 

„Samningurinn er auðvitað sérstakt ánægjuefni, enda höfum við séð með okkar eigin augum hvernig þetta samstarf hefur skilað áþreifanlegum árangri fyrir þær stúlkur og ungu konur sem notið hafa stuðnings af þessu mikilvæga verkefni,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Það gefur mikið að sjá hvernig stuðningur frá Íslandi gefur ungum konum færi á að leiða breytingar til hins betra í sínum nærsamfélögum.“

ElínPrudence
Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, skrifaði undir samninginn fyrir hönd Íslands og Prudence Chavula, framkvæmdarstjóri Go Fund a Girl Child, fyrir hönd samtakanna.
Mynd: Stjórnarráðið

Samkvæmt stjórnarráðinu fá þátttakendur í verkefninu fjölbreytta fræðslu um kyn- og frjósemisheilbrigði, mannréttindi, jafningjastuðning  og lífsleikni, svo sem samskiptafærni, sjálfsöryggi, heilbrigð sambönd, lausn ágreinings og loks fjármálalæsi og viðskiptaþjálfun. Veittir verða styrkir til þátttakenda til að hefja eigin atvinnurekstur, og byggja þannig upp fjárhagslegt öryggi fyrir sig og fjölskyldur sínar, ásamt skólastyrkjum fyrir þær sem vilja hefja aftur nám í skóla. 

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu
Innlent

Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu

Streita og kulnun
Skoðun

Dávur í Dali

Streita og kulnun

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Fjórir bílar í alvarlegu umferðarslysi
Innlent

Fjórir bílar í alvarlegu umferðarslysi

Reyndi að lauma sér til Íslands með fölsuðu skilríki
Innlent

Reyndi að lauma sér til Íslands með fölsuðu skilríki

Grímuklæddir ræningjar skutu mann fyrir utan lúxusverslun
Myndband
Heimur

Grímuklæddir ræningjar skutu mann fyrir utan lúxusverslun

Ekið á fréttafólk í beinni útsendingu
Myndband
Heimur

Ekið á fréttafólk í beinni útsendingu

Fimm hlutir sem þú ættir að losa þig við úr geymslunni
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir að losa þig við úr geymslunni

Flosi Kristinsson er fallinn frá
Minning

Flosi Kristinsson er fallinn frá

Íslandsferð Hönnuh tók óvænta stefnu þegar hún var handtekin
Innlent

Íslandsferð Hönnuh tók óvænta stefnu þegar hún var handtekin

Borgaði 30 dali fyrir málverk sem reyndist gullnáma
Myndir
Heimur

Borgaði 30 dali fyrir málverk sem reyndist gullnáma

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Pólitík

Mögulegur sökudólgur vill ekki að það sé leitað að sökudólgi
Pólitík

Mögulegur sökudólgur vill ekki að það sé leitað að sökudólgi

Valdimar sat í meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar meðan málið var til vinnslu
Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Loka auglýsingu