1
Heimur

Hópi ölvaðra kvenna vísað úr flugi til Tenerife

2
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

3
Fólk

Stjórnarformaður Icelandair selur eitt dýrasta hús landsins

4
Innlent

Með milljónir í töskunum á leið úr landi

5
Innlent

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis

6
Innlent

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína

7
Fólk

Gagnrýnir fyrirkomulag á tónleikum Of Monsters and Men

8
Fólk

Bára Beauty á von á tvíburum

9
Innlent

Óhugnanlegar tilkynningar úr Árbæ teknar mjög alvarlega

10
Fólk

Fyrrum þingmaður segir sjálfsfróun ekki þurfa að ógna samböndum

Til baka

Íslendingar í stóru alþjóðlegu verkefni

Alvarlegur og langvinnur sjúkdómur sem getur haft mjög hamlandi áhrif

Heilbrigðisstarfsfólk
„Stefnt er að því að fá 120 ME-sjúklinga og 30 heilbrigða viðmiðunareinstaklinga hér á landi til þátttöku í rannsókninni“
Mynd: Unsplash/Irwan

Akureyrarklíníkin og Landspítali hafa hafið þátttöku í nýju, umfangsmiklu alþjóðlegu rannsóknaverkefni sem miðar að því að varpa ljósi á líffræðilegar orsakir ME-sjúkdómsins (myalgic encephalomyelitis). Verkefnið er fjármagnað af rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins, Horizon Europe, og markar það mikilvæg tímamót í evrópsku samstarfi um lífvísindarannsóknir á þessu sviði, segir á vef Akureyrarklínkarinnar.

Alvarlegur sjúkdómur sem erfitt er að greina

ME er alvarlegur og langvinnur sjúkdómur sem getur haft mjög hamlandi áhrif á daglega virkni og lífsgæði sjúklinga. Hingað til hefur greining sjúkdómsins eingöngu byggst á klínísku mati sérfræðinga. Þetta fyrirkomulag veldur því oft að langur tími líður uns rétt greining liggur fyrir, sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir þá sem sýkjast.

Leit að lífmerkjum og markvissri meðferð

Að verkefninu standa vísindamenn, heilbrigðisstarfsfólk og fulltrúar sjúklinga frá meira en tuttugu rannsóknastofnunum í Evrópu og Kanada. Markmið samstarfsins er að auka skilning á líffræðilegum orsökum sjúkdómsins og þróa áreiðanleg lífmerki (e. biomarkers) sem tengjast erfðaþáttum, ónæmiskerfi, efnaskiptum, hormónastarfsemi og æðakerfi. Slík lífmerki munu auðvelda greiningu og leggja grunn að markvissari meðferðarúrræðum og framtíðar lyfjarannsóknum.

Umfangsmikil þátttaka á Íslandi

Verkefnið á Íslandi er leitt af Sigurveigu Þ. Sigurðardóttur, sérfræðingi í ofnæmis- og ónæmislækningum á Landspítalanum, í samstarfi við Friðbjörn Sigurðsson hjá Akureyrarklíníkinni. Stefnt er að því að fá 120 ME-sjúklinga og 30 heilbrigða viðmiðunareinstaklinga hér á landi til þátttöku í rannsókninni.

Raddir sjúklinga hafðar að leiðarljósi

Sérstök áhersla er lögð á virka aðkomu sjúklinga og hagsmunasamtaka þeirra. Reynsla þeirra verður nýtt beint við þróun rannsóknaraðferða, flokkun sjúklingahópa og mótun tillagna sem munu nýtast við stefnumótun í heilbrigðiskerfum framtíðarinnar. Þar sem verkefnið hlaut brautargengi eftir strangt alþjóðlegt fagmatsferli Horizon Europe er ljóst að rannsóknasviðið nýtur aukins vægis innan evrópsks vísindasamstarfs.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin
Heimur

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin

Stóð upp gegn fjölmiðlarisanum
„Við munum höfða mál gegn ríkinu“
Innlent

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn
Pólitík

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar
Heimur

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð
Heimur

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi
Innlent

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi

Ellefu særðir eftir skotárás í skóla
Heimur

Ellefu særðir eftir skotárás í skóla

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

Unglingur grunaður um að skipuleggja árás á skóla og mosku
Heimur

Unglingur grunaður um að skipuleggja árás á skóla og mosku

Stökk fyrir borð á skemmtiferðaskipi
Heimur

Stökk fyrir borð á skemmtiferðaskipi

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun
Innlent

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf
Innlent

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur
Innlent

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur

Innlent

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“
Innlent

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“

Kristján Loftsson vill veiða hvali sama hvað
Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur
Innlent

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi
Innlent

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun
Innlent

Umferð raskast við Háaleitisbraut á morgun

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf
Innlent

Sagður hafa nauðgað sambýliskonu sinni meðan hún svaf

Loka auglýsingu