1
Peningar

15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir

2
Peningar

Fjórtán í Mosfellsbæ sem synda í seðlum

3
Minning

Steinn Ármann Magnússon er fallinn frá

4
Fólk

Gullfallegt hús með afþreyingaraðstöðu til sölu

5
Heimur

30 manns létust í ruslaslysi

6
Fólk

Óska eftir tilboði í eitt eftirsóttasta hús Garðabæjar

7
Fólk

Jón Þór fær starf hjá Samherja

8
Heimur

Níu líffæri fjarlægð eftir ranga greiningu

9
Fólk

„Það var ekki til neinn peningur“

10
Stjórnandinn

Intróvertinn sem þurfti að verða extróvert

Til baka

Íslensk kvikmynd á meðal þeirra bestu á Norðurlöndum

Hlynur og Anton tilnefndir í fjórða sinn

Ástin sem eftir er
„Ástin sem eftir er“ tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs
Mynd: Nordisk Film

Íslenska kvikmyndin Ástin sem eftir er (The Love That Remains) er á meðal þeirra sex kvikmynda sem tilnefndar eru til hinna virtu Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2026. Tilnefningarnar voru opinberaðar í dag, en fimm leiknar kvikmyndir og ein heimildarmynd bítast um verðlaunin í ár.

Þetta er í fjórða sinn sem leikstjórinn og handritshöfundurinn Hlynur Pálmason hlýtur tilnefningu til verðlaunanna, og í öll skiptin hefur leiðir hans og framleiðandans Antons Mána Svanssonar borið saman. Athygli vekur að tilnefningar Hlyns hafa komið fyrir hönd tveggja ólíkra Norðurlanda í gegnum tíðina.

Fyrsta tilnefning Hlyns kom árið 2018 fyrir dönsku myndina Vetrarbræður, þar sem Anton Máni var einn framleiðenda. Árið 2019 var Hlynur tilnefndur fyrir íslensku myndina Hvítan, hvítan dag og árið 2022 fyrir Volaða land, sem var framlag Danmerkur. Auk þess var Anton Máni tilnefndur árið 2017 fyrir Hjartastein. Meðframleiðandi Ástarinnar sem eftir er í ár er Katrin Pors.

Sex ólíkar myndir á ferðalagi um Norðurlöndin

Alls eru sex kvikmyndir tilnefndar til verðlaunanna í ár og endurspegla þær breidd norrænnar kvikmyndagerðar:

  • Ástin sem eftir er (Ísland) – Leikstjórn og handrit: Hlynur Pálmason.
  • Beginnings/ Begyndelser (Danmörk) – Leikstjórn: Jeanette Nordahl.
  • Birita (Færeyjar) – Leikstjórn og handrit: Búi Dam.
  • A Light That Never Goes Out (Finnland) – Leikstjórn og handrit: Lauri-Matti Parppei.
  • Sentimental Value / Affeksjonsverdi (Noregur) – Leikstjórn: Joachim Trier.
  • Kevlar Soul / Kevlarsjäl (Svíþjóð) – Leikstjórn: Maria Eriksson-Hecht.

Grænland sendi ekki inn framlag að þessu sinni. Myndirnar verða sýndar á kvikmyndahátíðum víðs vegar um Norðurlönd í ágúst, september og október. Á Íslandi verða þær sýndar í Bíó Paradís í tengslum við Stockfish kvikmynda- og bransahátíðina dagana 13.–18. október.

Verðlaunaféð skiptist jafnt

Opinber tilnefningarathöfn fer fram á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Haugasundi í Noregi á morgun, þriðjudaginn 25. ágúst.

Sigurvegararnir verða svo tilkynntir þann 20. október næstkomandi, ásamt vinningshöfum í flokkum bókmennta, tónlistar og umhverfismála. Verðlaunahafar fá afhenta styttuna „Nordlys“ í lok októbermánaðar.

Kvikmyndaverðlaunin nema 300.000 dönskum krónum (tæpum 6 milljónum íslenskra króna). Verðlaunafénu er skipt jafnt á milli handritshöfunda, leikstjóra og framleiðenda til að undirstrika mikilvægi samstarfs þessara þriggja lykilaðila í kvikmyndalist.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ingunn Rut fékk fimm og hálfa milljón eftir pyntingar á manni
Innlent

Ingunn Rut fékk fimm og hálfa milljón eftir pyntingar á manni

Hefur játað sök, að hluta til
Bjuggu til sögusagnir í kringum veikindi Jóns
Sport

Bjuggu til sögusagnir í kringum veikindi Jóns

Kókaínkennari sviptur starfsréttindum
Heimur

Kókaínkennari sviptur starfsréttindum

Borgarbókasafnið fær veglega gjöf frá verðlaunahöfundi
Menning

Borgarbókasafnið fær veglega gjöf frá verðlaunahöfundi

Krafturinn í því að vera loksins séð
Fólk

Krafturinn í því að vera loksins séð

„Það var ekki til neinn peningur“
Fólk

„Það var ekki til neinn peningur“

Lykillinn að hamingju Elínar Hall
Fólk

Lykillinn að hamingju Elínar Hall

Þrír nýir prestar vígðir
Innlent

Þrír nýir prestar vígðir

Níu líffæri fjarlægð eftir ranga greiningu
Heimur

Níu líffæri fjarlægð eftir ranga greiningu

Reykvíkingur ákærður fyrir skjalafals á Norðurlandi
Innlent

Reykvíkingur ákærður fyrir skjalafals á Norðurlandi

Hollendingar sniðganga Eurovision á næsta ári
Heimur

Hollendingar sniðganga Eurovision á næsta ári

Menning

Íslensk kvikmynd á meðal þeirra bestu á Norðurlöndum
Menning

Íslensk kvikmynd á meðal þeirra bestu á Norðurlöndum

Hlynur og Anton tilnefndir í fjórða sinn
Borgarbókasafnið fær veglega gjöf frá verðlaunahöfundi
Menning

Borgarbókasafnið fær veglega gjöf frá verðlaunahöfundi

DIMMA búin að finna eftirmann Stebba Jak
Menning

DIMMA búin að finna eftirmann Stebba Jak

Frá Kópavogi til Síerra Leóne
Menning

Frá Kópavogi til Síerra Leóne

„Stundum borgar sig að dreyma stórt“
Viðtal
Menning

„Stundum borgar sig að dreyma stórt“

Loka auglýsingu