1
Peningar

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum

2
Innlent

„Þetta er svaka adrenalínsjokk“

3
Innlent

Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu

4
Innlent

Tveir fluttir á bráðamóttöku

5
Fólk

„Spilling var eins og þjóðaríþrótt“

6
Heimur

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu

7
Heimur

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku

8
Fólk

Landsliðskona selur íbúð í Kópavogi

9
Innlent

Tomas tók lögreglumann hengingartaki

10
Minning

Birgir Valur Ágústsson er fallinn frá

Til baka

Íslenskar konur prjóna fyrir börn á Gaza

Norskt friðarverkefni nær til Íslands

Selbuvettlingar
SelbuvettlingarFallegri gerast þeir varla, vettlingarnir
Mynd: Instagram-skjáskot

Grasrótarverkefni sem hófst í Noregi í janúar síðastliðnum hefur nú náð til Íslands undir heitinu Selbuvettlingar fyrir Frið. Verkefnið felst í því að prjóna hefðbundna norska vettlinga í fánalitum Palestínu og láta andvirðið renna til mannúðarsamtaka sem starfa á Gaza.

„Í janúar 2024 sat skosk-pakistönsk kona heima hjá sér í Noregi og reif í hárið á sér, eins og maður segir, af angist yfir því hvernig er farið með Palestínsku þjóðina,“ segir Sigrún Haraldsdóttir, sem stendur að verkefninu hér á landi, í samtali við Mannlíf. „Hana langaði að gera eitthvað til að hjálpa til og ákvað að prjóna svokallaða Selbuvettlinga (Íslendingar þekkja þá sem Betlehemsstjörnuna í prjónamunstri eða bara norskt munstur) í fánalitum Palestínu.“

Upphafskonan heitir Iffit Sætre Qureshi og er ljósmyndari og rithöfundur.

Segist hún, í samtali við Mannlíf hafa unnið mjög hart að því að þróa þetta verkefni frá A til Ö, allt frá hönnun og skipulagsuppbyggingu til gildanna og samfélagsins sem liggur að baki. Hvert einasta skref í þróun verkefnisins hefur verið vandlega íhugað, að hennar sögn.

„Við höfum vaxið úr litlu íbúðinni minni í Ósló yfir í að hafa prjónara í Svíþjóð, á Íslandi, í Danmörku, Þýskalandi, Kanada og Hollandi. Pantanir berast nú hvaðanæva að úr heiminum.“

Iffit setti mynd af vettlingunum á netið og bauð þá til sölu. „Þannig fór boltinn að rúlla hjá þeim hér í Noregi. Grasrótarhreyfingin Selbuvotter for Fred varð til og alltaf bættust við pantanir og fleiri prjónarar. Nú hafa þau safnað yfir 2 milljónum norskra króna sem fara sem beinir styrkir til nokkurra hjálparsamtaka sem starfa á Gaza, þar á meðal Lækna án landamæra,“ segir Sigrún í samtali við Mannlíf.

Hún vildi flytja hugmyndina til Íslands og styrkja Vonarbrú, sem styður barnafjölskyldur á Gaza. „Mig langaði mikið að koma þessu til Íslands til að afla styrkja fyrir Vonarbrú. Ég hafði samband við konuna sem startaði hreyfingunni hér í Noregi og spurði hana hvort við mættum nota prjónauppskriftirnar þeirra til að koma Selbuvettlingum fyrir Frið af stað á Íslandi. Það var aufúsumál,“ segir hún.

Í kjölfarið hófu Sigrún og Kristín Sæmundsdóttir, eigandi netverslunarinnar Svo Margt Fallegt, verkefnið á Íslandi um mánaðamótin október og nóvember.

„Konseptið gengur út á það þú pantar vettlinga á Instagramsíðu eða Facebooksíðu Selbuvettlingar fyrir Frið… tiltekur stærð, litasamsetningu og gerð munsturs, greiðir styrk beint til Vonarbrúar og sendir mér kvittun fyrir banka-millifærslu eða aur-færslu,“ útskýrir Sigrún. „Þegar það er komið þá finn ég prjónara til að prjóna vettlingana þína, við erum nú þegar komnar með um 20 prjónara, allt konur, sem bíða eftir verkefnum.“

Allt vinnuframlag í verkefninu er sjálfboðaliðastarf. „Konurnar og við Kristín gerum þetta allt í sjálfboðavinnu, kaupandi greiðir styrkinn beint til Vonarbrúar og garn og hugsanlegan sendingarkostnað til prjónarans,“ segir Sigrún.

Viðtökurnar hafa farið fram úr væntingum

„Viðtökurnar hafa verið frábærar, á þessum 11 dögum hafa safnast 155.500 krónur til Vonarbrúar og sífellt fleiri prjónakonur bætast í hópinn,“ segir hún að lokum.

👉 Panta má vettlinga eða skrá sig sem prjónara á linktr.ee/selbuvettlingar_fyrir_frid.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu
Heimur

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu

„Í hreinskilni sagt er þetta komið gott.“
Telja skotárásina á pýramídanum hafa verið skipulagða
Heimur

Telja skotárásina á pýramídanum hafa verið skipulagða

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal
Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku
Heimur

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola
Innlent

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola

Svíar sektaðir eftir landsleik við Pólland
Sport

Svíar sektaðir eftir landsleik við Pólland

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu
Innlent

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu

Húsleit gerð vegna „hinsegin áróðurs“
Heimur

Húsleit gerð vegna „hinsegin áróðurs“

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum
Peningar

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu
Landið

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni
Innlent

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni

Laufey sló í gegn á frumsýningu
Myndir
Fólk

Laufey sló í gegn á frumsýningu

Slysasprenging í skriðdreka drap hermenn
Heimur

Slysasprenging í skriðdreka drap hermenn

Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal
Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal

„Við ætlum okkur að byggja eitthvað miklu meira en bara eitthvað hús.“
Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu
Innlent

Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola
Innlent

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu
Innlent

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni
Innlent

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni

Íslenskri konu ekki gerð refsing fyrir að beita lögreglumann ofbeldi
Innlent

Íslenskri konu ekki gerð refsing fyrir að beita lögreglumann ofbeldi

Loka auglýsingu