Jenna Jameson, fyrrverandi klámmyndaleikkona og núverandi athafnakona, er gengin í hjónaband með kærustu sinni, Milagros Ocampo. Þær gengu í hjónaband í Miami í Flórída 25. júlí síðastliðinn.
Jameson og Ocampo hófu samband sitt í mars 2025, skömmu eftir að Jameson sótti um skilnað frá Jessi Lawless. Jameson og Lawless gengu í hjónaband í maí 2023 en slitu samvistum í apríl 2024, innan við ári síðar.
Lawless óskaði síðar eftir ógildingu hjónabandsins og hélt því meðal annars fram að Jameson hefði gengið inn í hjónabandið á fölskum forsendum. Samkvæmt Lawless hefði Jameson sagt að hún væri skuldlaus en ekki upplýst um að hún skuldaði um 500 þúsund Bandaríkjadali í skatta.
Lawless hélt því einnig fram að Jameson hefði lofað að halda sig frá áfengi og öðrum vímuefnum en ekki staðið við það loforð.
Jameson var í kringum aldamót vinsælasta klámstjarna heimsins og talið að DVD myndir hennar hafi selst milljónum eintaka í gegnum árin. Þá er hún ein mest verðlaunaklámstjarna allra tíma en hún hætti að koma fram í klámmyndum fyrir 15 árum. Auk þess að leika í klámi hefur hún leikið í Sons of Anarchy, Grand Theft Auto: Vice City, Nash Bridges og Family Guy.
