1
Innlent

Mæðgur settar í lífshættu á Langholtsvegi

2
Innlent

„Fyrir utan sjúkrahúsið missti hann meðvitund“

3
Fólk

Kvartmilljarður fyrir þessa útsýnisperlu

4
Innlent

Sky Lagoon langdýrasta baðlónið

5
Innlent

Segir minnimáttarkennda karla tala niður til Valkyrjanna

6
Innlent

Kærasti grunaður um manndrápstilraun

7
Fólk

Linda Ben í trylltu stelpufjöri í Köben

8
Heimur

Kona lést eftir átta klukkustunda fegrunaraðgerð

9
Fólk

Landsliðshetja að verða faðir

10
Heimur

Sögðust vera með byssu og réðust gegn áhöfninni

Til baka

Skilur að Ása Berglind vilji ekki mæta í spjallþátt

„Ég skil alveg að fólk nenni ekki ómálefnalega hlutanum“

Ása Berglind Hjálmarsdóttir
Ása Berglind HjálmarsdóttirEr þingmaður Samfylkingarinnar.
Mynd: Harpa

Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, segist skilja vel hvers vegna þingmenn og ráðherrar kunni að hafa takmarkaðan áhuga á að mæta í viðtalsþátt Stefáns Einars Stefánssonar en hann hefur á undanförnum mánuðum stýrt þættinum Spursmál. Tilefnið er umræða um ákvörðun Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, um að þiggja ekki boð um að mæta í þátt Stefáns og ræddi Björn það á Facebook.

Ása hafði áður sagt í umræðum við Stefán Einar á Facebook að hún hefði ekki áhuga á að mæta í þátt hans. Stefán hefur gagnrýnt þá ákvörðun en Björn Leví fjallar ítarlega um málið í færslu.

Hann segir þingmenn ekki hafa skyldu til að svara fjölmiðlum og vísar í stjórnarskrána þar sem segir að alþingismenn séu eingöngu bundnir við sannfæringu sína. Því skipti að hans mati ekki höfuðmáli hvort þáttur Stefáns sé skilgreindur sem hefðbundinn fjölmiðill eða pólitískur málflutningsvettvangur.

Björn Leví telur líklegra að ástæða þess að stjórnmálamenn vilji síður mæta í þáttinn sé framganga þáttastjórnandans.

„Mig grunar frekar að ástæðan sé að þáttastjórnandi getur verið ansi – mis málefnalega – ágengur í spurningum sínum. Ég skil alveg að fólk nenni ekki ómálefnalega hlutanum,“ skrifar hann.

Hefur sjálfur átti í deilum við Stefán

Björn Leví rifjar jafnframt upp eigin orðaskipti við Stefán Einar. Stefán hafi þar meðal annars spurt hann hvort hann ætlaði að draga ummæli sín til baka „eða ertu bara aumur lygari?“ Björn Leví segist hafa svarað með því að spyrja hvort verðsamanburður sem deilt var um hefði verið rangur. Að hans sögn hefur þeirri spurningu ekki verið svarað.

Hann segir Stefán spyrja ágengra spurninga sem geti bæði verið góðar og erfiðar, en einnig ósanngjarnar eða ómálefnalegar. Að hans mati sé erfitt að eiga málefnalegar og uppbyggilegar samræður við Stefán, miðað við eigin reynslu.

Björn Leví líkir viðtalsstílnum við kappræður í Morfís og segir skiljanlegt að stjórnmálamenn vilji ekki taka þátt í slíkum umræðum.

„Afsökunin fyrir því að mæta ekki í viðtal til Stefáns er ekki af því að þátturinn hans er ‘pólitískur málflutningsvettvangur’ heldur af því að það er skiljanlegt að maður nenni ekki að mæta í morfís kappræður þegar maður vill bara eiga í málefnalegum umræðum um einstaka mál,“ skrifar Björn Leví.

Sjálfur segist hann einu sinni hafa mætt til Stefáns þrátt fyrir að hafa ekki haft sérstakan áhuga á því. Hann hafi þó talið málefnalega ástæðu til að taka umræðuna og að það samræmdist sannfæringu hans um starf þingmanns.

Fyrrverandi þingmenn tjá sig

Blaðamaðurinn fyrrverandi Freyr Rögnvaldsson finnst færsla Björn einkennasta af hrútskýringalyk.

„Mér finnst þú fara í miklar bollaleggingar um umrætt svar Ásu. Það er ekkert óeðlilegt við að hún hafi ekki áhuga á að mæta í eitthvað sem hún upplifir sem pólitískan málflutningsvettvang, þegar sá vettvangur er dulbúinn sem hefðbundinn fjölmiðill,“ skrifar Freyr.

„Mér finnst líka hrútskýringalykt af því að þú sért hér að útskýra hvað þingmaðurinn eigi í raun við, það sé ekki það sem hún hefur látið frá sér fara heldur eitthvað annað. Ertu þá að væna þingmanninn um að segja ósatt, eða að hún geri sér sjálf ekki grein fyrir því hvað hún er að fara með þessum ummælum?“

„Gott hjá henni að sniðganga þessa kvaðningu í yfirheyrslu,“ skrifar Guðundur Andri Thorsson, fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar, í athugasemd við færslu Björns.

„Ef ég væri starfandi þingmaður gæti ég ekki lýst því opinberlega af fullkominni hreinskilni hvers vegna ég myndi aldrei mæta til hans. Ekki því að það sé eitthvað leyndarmál í sjálfu sér, heldur því að slíkur munnsöfnuður sæmir ekki starfandi þingmanni,“ skrifar Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrum þingmaður Pírata, í athugasemd við færslu Björns.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Landsliðshetja að verða faðir
Fólk

Landsliðshetja að verða faðir

Linda Ben í trylltu stelpufjöri í Köben
Myndir
Fólk

Linda Ben í trylltu stelpufjöri í Köben

Fjöldahandtökur í aðgerðum gegn hinsegin fólki í Tyrklandi
Heimur

Fjöldahandtökur í aðgerðum gegn hinsegin fólki í Tyrklandi

Sky Lagoon langdýrasta baðlónið
Innlent

Sky Lagoon langdýrasta baðlónið

Segir minnimáttarkennda karla tala niður til Valkyrjanna
Innlent

Segir minnimáttarkennda karla tala niður til Valkyrjanna

Sögðust vera með byssu og réðust gegn áhöfninni
Heimur

Sögðust vera með byssu og réðust gegn áhöfninni

Kona lést eftir átta klukkustunda fegrunaraðgerð
Heimur

Kona lést eftir átta klukkustunda fegrunaraðgerð

Dráp Rússa magnast þegar veturinn nálgast
Heimur

Dráp Rússa magnast þegar veturinn nálgast

Sextán létust í skelfilegum eldsvoða á hjúkrunarheimili
Heimur

Sextán létust í skelfilegum eldsvoða á hjúkrunarheimili

Kvartmilljarður fyrir þessa útsýnisperlu
Myndir
Fólk

Kvartmilljarður fyrir þessa útsýnisperlu

Lögreglan slökkti ljósin í samkvæminu
Innlent

Lögreglan slökkti ljósin í samkvæminu

Kærasti grunaður um manndrápstilraun
Innlent

Kærasti grunaður um manndrápstilraun

Innlent

Sky Lagoon langdýrasta baðlónið
Innlent

Sky Lagoon langdýrasta baðlónið

Verð á aðgangi að íslenskum baðlónum gæti hækkað allt að tæplega 1.800 krónum
„Fyrir utan sjúkrahúsið missti hann meðvitund“
Innlent

„Fyrir utan sjúkrahúsið missti hann meðvitund“

Segir minnimáttarkennda karla tala niður til Valkyrjanna
Innlent

Segir minnimáttarkennda karla tala niður til Valkyrjanna

Lögreglan slökkti ljósin í samkvæminu
Innlent

Lögreglan slökkti ljósin í samkvæminu

Kærasti grunaður um manndrápstilraun
Innlent

Kærasti grunaður um manndrápstilraun

Mæðgur settar í lífshættu á Langholtsvegi
Innlent

Mæðgur settar í lífshættu á Langholtsvegi

Loka auglýsingu