1
Innlent

Erlendur námsmaður á meðal þeirra sem létust á Krýsuvíkurvegi

2
Peningar

Fyrirtæki Höllu forseta greiðir út tugi milljóna í arð

3
Innlent

Telur Magnús Hlyn vera „á svokölluðu gráu svæði“

4
Innlent

Hin látnu á Krýsuvíkurvegi voru fædd á árunum 2005 til 2009

5
Peningar

Risastór verðmunur á dagvöru

6
Minning

Lágafellskirkja boðar til minningarstundar

7
Landið

Stórglæsilegar myndir af borgarísjaka við Íslandsstrendur vekja athygli

8
Innlent

Magahjáveita Baldvins breyttist í lífshættulega martröð

9
Peningar

Fimmtán á Suðurnesjum með fjárhaginn í feiknaformi

10
Peningar

Sextán á Vestfjörðum með pyngjuna í góðum holdum

Til baka

Framkvæmdastjóri dæmdur fyrir 100 milljóna skattsvik

Sagðist hafa treyst bókara sínum til að sjá um þessi mál

Hafnarfjörður 2024
HafnarfjörðurIceland tire ehf. hafði aðsetur í Hafnarfirði
Mynd: Hafnarfjarðarbær

Muhammad Younas, framkvæmdastjóri og eigandi hjólbarðafyrirtækisins Iceland tire ehf., hefur verið dæmdur í 16 mánaða fangelsi fyrir meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum. Fangelsisrefsingin er skilorðsbundin til tveggja ára.

Málið varðaði rekstur Iceland tire á árunum 2017 til 2022. Samkvæmt ákæru voru rekstrartekjur félagsins vanframtaldar um tæpar 174 milljónir króna vegna rekstraráranna 2018 til 2021 og skattskyldur hagnaður um rúmar 170 milljónir. Vangreiddur tekjuskattur vegna þessa nam rúmum 34 milljónum króna.

Þá voru virðisaukaskattsskýrslur félagsins rangar og nam vangreiddur virðisaukaskattur samtals tæpum 64,5 milljónum króna. Einnig var Muhammad ákærður fyrir að hafa rangfært bókhald félagsins, meðal annars með því að gefa ekki út sölureikninga vegna hluta sölunnar og gefa út reikninga án þess að raunveruleg sala lægi að baki.
Muhammad neitaði sök og byggði vörn sína meðal annars á því að hann hefði falið bókhaldsstofu að sjá um bókhald, framtöl og skattskil fyrirtækisins. Hann sagðist ekki kunna að lesa eða skrifa íslensku og hafa treyst bókara sínum til að sjá um þessi mál.

Dómurinn féllst ekki á þær málsvarnir. Þar kemur fram að Muhammad hafi verið stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi félagsins og því borið ábyrgð á því að starfsemi og bókhald þess væru í samræmi við lög. Að fela bókhaldsstofu verkefnin hafi ekki firrt hann þeirri ábyrgð. Dómurinn taldi háttsemi hans fela í sér stórfellt hirðuleysi.
Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til þess að brotin vörðuðu umtalsverðar fjárhæðir og stóðu yfir í langan tíma. Muhammad hafði þó ekki áður sætt refsingu.

Muhammad og félagið voru jafnframt dæmd til að greiða óskipt rúmlega 295,6 milljóna króna sekt í ríkissjóð.

Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna skal Muhammad sæta 360 daga fangelsi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Það er engum hollt að sjá svona myndefni“
Innlent

„Það er engum hollt að sjá svona myndefni“

Myndskeið frá vettvangi slyssins hafa gengið milli manna
Sökuð um grófa vanrækslu eftir að fimm ára dóttir þeirra drukknaði
Heimur

Sökuð um grófa vanrækslu eftir að fimm ára dóttir þeirra drukknaði

Karlmaður dæmdur fyrir 260 kannabisplöntur á Vestfjörðum
Innlent

Karlmaður dæmdur fyrir 260 kannabisplöntur á Vestfjörðum

Fimm smágrísir drápust eftir innbrot hjá Stjörnugrís
Innlent

Fimm smágrísir drápust eftir innbrot hjá Stjörnugrís

Bjóða Íslendingum að heimsækja glæsilegt seglskip
Innlent

Bjóða Íslendingum að heimsækja glæsilegt seglskip

Gríðarlegur verðmunur á æfingagjöldum
Peningar

Gríðarlegur verðmunur á æfingagjöldum

Magahjáveita Baldvins breyttist í lífshættulega martröð
Innlent

Magahjáveita Baldvins breyttist í lífshættulega martröð

Karlmaður ákærður fyrir hylmingu í Leifsstöð
Innlent

Karlmaður ákærður fyrir hylmingu í Leifsstöð

Nýbökuð móðir stungin til bana á Times Square
Heimur

Nýbökuð móðir stungin til bana á Times Square

Sextán létust í hræðilegu rútuslysi
Heimur

Sextán létust í hræðilegu rútuslysi

Telur Magnús Hlyn vera „á svokölluðu gráu svæði“
Myndband
Innlent

Telur Magnús Hlyn vera „á svokölluðu gráu svæði“

Fór í viðtal hjá áróðursmiðli Pútín
Myndband
Innlent

Fór í viðtal hjá áróðursmiðli Pútín

Innlent

„Það er engum hollt að sjá svona myndefni“
Innlent

„Það er engum hollt að sjá svona myndefni“

Myndskeið frá vettvangi slyssins hafa gengið milli manna
Karlmaður ákærður fyrir hylmingu í Leifsstöð
Innlent

Karlmaður ákærður fyrir hylmingu í Leifsstöð

Karlmaður dæmdur fyrir 260 kannabisplöntur á Vestfjörðum
Innlent

Karlmaður dæmdur fyrir 260 kannabisplöntur á Vestfjörðum

Fimm smágrísir drápust eftir innbrot hjá Stjörnugrís
Innlent

Fimm smágrísir drápust eftir innbrot hjá Stjörnugrís

Bjóða Íslendingum að heimsækja glæsilegt seglskip
Innlent

Bjóða Íslendingum að heimsækja glæsilegt seglskip

Magahjáveita Baldvins breyttist í lífshættulega martröð
Innlent

Magahjáveita Baldvins breyttist í lífshættulega martröð

Loka auglýsingu