1
Landið

„Fávitinn“ á pallbílnum svarar fyrir sig

2
Innlent

„Mjög margir að losa sig við miða á tónleika Kaleo á Þingvöllum“

3
Minning

Margrét Helga Jóhannsdóttir er fallin frá

4
Minning

Þráinn Eggertsson er látinn

5
Landið

Krúttlegar hrotur íslensks hests vekja athygli og kátínu

6
Fólk

Eitt flottasta einbýli höfuðborgarsvæðisins komið á sölu

7
Fólk

Sunnuvegshöll komin á sölulista

8
Innlent

Þorsteinn fékk 14 ára dóm í Hæstarétti

9
Fólk

Lögreglumaður sýndi óvænta danstilburði á 17. júní

10
Innlent

Réðst á stjúpdóttur sína með pitsuskera

Til baka

„Jólamatur er vondur“

Íris Kristín opnar sig umdeilda skoðun

Íris og Kristín - Tvær Taktlausar
Íris Kristín ætlar að fá sér nautalund um jólin
Mynd: Víkingur

Hlaðvarpið Tvær taktlausar hefur verið að fá meiri og meiri athygli fyrir gleði og húmor en þáttastjórnendur eru þær Íris Kristín Smith, grunnskólakennari og grínisti, og Kristín Viðarsdóttir, kjarnastjóri á leikskóla.

Í nýjasta þættinum er umfjöllunarefnið „hot takes“ sem mætti þýða sem umdeildar skoðanir og greina þær báðar frá skoðunum sínum sem þær telja að séu nokkuð umdeildar.

Meðal þess sem Kristín nefnir er að grænmeti sé betra en ávextir og færir ýmiss konar rök fyrir sínu máli. Það er hins vegar Íris Kristín sem skellir því fram að jólamatur sé vondur.

Brot úr þættinum

Íris: Hangikjöt er gott á flatköku. I love that. Hangikjöt og uppstúf finnst mér viðbjóður.

Kristín: Já ok, þannig að þú færð þér hnetusteikina um jólin?

Íris: Ég mun ábyggilega fá mér nautalund. Jólamatur er vondur.

Kristín: Þarna ferðu algjörlega gegn konunni minni. Hún elskar jólamat, en það er aðallega út af meðlætinu.

Íris: Mér finnst kalkúnn góður og meðlætið með því en mér finnst ég ekki beint tengja það við jólamat. Mér finnst laufabrauð vont. Mér finnst hangikjöt ekki gott.

Kristín: Annað hot take, laufbrauð vont.

Íris: Já, þetta er ógeðslega mikið ekki gott. Það er djúptsteikt og ekkert sérstakt. Ég er nýbyrjuð að smakka það af viti og mér finnst það ekki næs. Þetta er hitamál hjá mér. Ég er brjáluð, mér er orðið heitt að ræða þetta. Þegar ég fer í matarboð um jólin og það er boðið í hangikjöt. Ég er bara „Er ekkert annað í boði?“ - „Jú, það er uppstúf“ - Ennþá verra. Ég borða frekar hangikjötið eintómt heldur en með uppstúf.

Kristín: Þannig að aðalmálið þitt er eiginlega uppstúfur.

Íris: Mér finnst það ógeðslega vont og kartöflumús líka.

Kristín: Kartöflumús!? Heimagerð góð karftöflumús?

Íris: Já, mér finnst hún ekki góð. Ég fæ mér bara smá, til að hafa meðlæti með. Þetta er sýndarmennskan.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Réðst harkalega á barnsmóður sína
Innlent

Réðst harkalega á barnsmóður sína

Maðurinn var einnig dæmdur fyrir að aka ítrekað fullur
Opnun Sundhallar Reykjavíkur frestast
Innlent

Opnun Sundhallar Reykjavíkur frestast

Trump segir segir Meloni hafa „grátbeðið“ um ljósmynd
Heimur

Trump segir segir Meloni hafa „grátbeðið“ um ljósmynd

Veiðar á íslenskum ref markaðssett sem spennandi upplifun fyrir erlenda veiðimenn
Innlent

Veiðar á íslenskum ref markaðssett sem spennandi upplifun fyrir erlenda veiðimenn

Lögreglumaður sýndi óvænta danstilburði á 17. júní
Myndband
Fólk

Lögreglumaður sýndi óvænta danstilburði á 17. júní

Róbert og Valgeir dæmdir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás
Innlent

Róbert og Valgeir dæmdir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás

Látinn eftir umferðarslys við Reykholt
Minning

Látinn eftir umferðarslys við Reykholt

Bæjarstjóri sakaður um að hafa sviðsett eigið mannrán
Heimur

Bæjarstjóri sakaður um að hafa sviðsett eigið mannrán

Sumargrillið hækkar í verði
Innlent

Sumargrillið hækkar í verði

Inga hitti öryggissérfræðinga TikTok
Pólitík

Inga hitti öryggissérfræðinga TikTok

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallar te
Innlent

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallar te

Neyðarástand vegna ebólufaraldurs
Heimur

Neyðarástand vegna ebólufaraldurs

Fólk

Lögreglumaður sýndi óvænta danstilburði á 17. júní
Myndband
Fólk

Lögreglumaður sýndi óvænta danstilburði á 17. júní

Myndband sem embættið birti af atvikinu sýnir lifandi og góða stemningu á torginu
Brautryðjandi selur íbúð í Grafarvogi
Myndir
Fólk

Brautryðjandi selur íbúð í Grafarvogi

Eitt flottasta einbýli höfuðborgarsvæðisins komið á sölu
Myndir
Fólk

Eitt flottasta einbýli höfuðborgarsvæðisins komið á sölu

Málmhausar skelltu sér í golf
Myndir
Fólk

Málmhausar skelltu sér í golf

Sunnuvegshöll komin á sölulista
Myndir
Fólk

Sunnuvegshöll komin á sölulista

Lofa langlífi með grískri lífsspeki
Fólk

Lofa langlífi með grískri lífsspeki

Loka auglýsingu