1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

6
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

9
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

10
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

Til baka

Veiðar á íslenskum ref markaðssett sem spennandi upplifun fyrir erlenda veiðimenn

Þrátt fyrir að stofninn hafi minnkað um allt að 40% eru þúsundir refa felldir á hverju ári.

Íslenskur refur
Sérstaklega er lagst gegn svokölluðum grenjaveiðum, þar sem refir eru felldir við gren sín og yrðlingar drepnir.
Mynd: Phil Garcia/Samtök um dýravelferð á Íslandi

Umhverfissamtök og dýraverndunarsinnar krefjast þess að fyrirkomulag refaveiða á Íslandi verði endurskoðað hið fyrsta. Skorað hefur verið á umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að grípa í taumana, en vaxandi óánægja er með að refaveiðar séu markaðssettar sem spennandi upplifun fyrir erlenda ferðamenn.

Nýlega var umhverfisráðherra sent formlegt erindi þar sem þess er krafist að stjórnvöld hlutist til um breytingar á löggjöf er varðar refaveiðar. Sérstaklega er lagst gegn svokölluðum grenjaveiðum, þar sem refir eru felldir við gren sín og yrðlingar drepnir. Sú aðferð þykir afar umdeild og stríða gegn nútíma dýravelferðarsjónarmiðum, en Ísland er eitt fárra landa þar sem veiðiaðferðin er enn leyfð.

Stofninn minnkað en þúsundir enn felldar

Íslenski refurinn
Skorað er á almenning og stjórnvöld að standa vörð um íslenska refinn og tryggja að dýravelferð verði höfð að leiðarljósi í framtíðarstefnumótun.
Mynd: Phil Garcia/Samtök um dýravelferð á Íslandi

Íslenski refurinn er eina upprunalega landspendýr landsins og hefur lifað hér í þúsundir ára. Þrátt fyrir að vísbendingar séu um að refastofninn hafi minnkað um allt að 40% á undanförnum árum, eru þúsundir dýra enn felldar árlega hér á landi. Gagnrýnendur benda á að opinber kostnaður við refaveiðar hafi numið milljörðum króna af skattfé í gegnum tíðina.

Mikið áhyggjuefni þykir að undanfarið hafi færst í vöxt að refaveiðar séu markaðssettar erlendis sem eftirsóknarverð afþreying. Erlendir veiðimenn eru dregnir að landinu til að veiða þetta fágæta dýr, sem borið hefur hitann og þungann af lífríki Íslands frá lokum ísaldar.

Kallað eftir verndun landnemans

Samtök um dýravelferð á Íslandi telja núverandi fyrirkomulag óverjandi og skjóta skökku við alþjóðleg markmið um náttúru- og dýravernd. Skorað er á almenning og stjórnvöld að standa vörð um íslenska refinn og tryggja að dýravelferð verði höfð að leiðarljósi í framtíðarstefnumótun.

Ráðuneytið hefur enn ekki gefið út opinbert svar við erindinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku
Myndband
Heimur

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga
Innlent

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum
Heimur

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu
Landið

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

Dóttir Noels Gallagher flutt á sjúkrahús í andnauð
Myndband
Heimur

Dóttir Noels Gallagher flutt á sjúkrahús í andnauð

Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg
Innlent

Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg

Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

400 milljónir króna hurfu
Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg
Innlent

Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga
Innlent

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

Loka auglýsingu