
Jón Þór Kristjánsson hefur tekið til starfa hjá Samherja sem verkefnastjóri upplýsingamiðlunar en greint er frá þessu á vef Samherja.
Jón Þór er með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í opinberri stefnumótun frá Edinborgarháskóla. Hann hefur víðtæka reynslu af fjölmiðlum og upplýsingamiðlun og starfaði áður sem fréttamaður hjá Viðskiptablaðinu, N4 og RÚV.
Undanfarið ár hefur Jón Þór starfað hjá Akureyrarbæ, fyrst sem verkefnastjóri upplýsingamiðlunar og síðar sem forstöðumaður þjónustu og þróunar.
Jón Þór segist fullur tilhlökkunar að hefja störf hjá Samherja og taka þátt í þeim verkefnum sem fram undan eru.
„Hjá Samherja starfar samheldin áhöfn, sem hefur átt stóran þátt í að þróa með markvissum hætti þetta framsækna og tæknivædda fyrirtæki,“ segir Jón Þór.
Hann segir mörg spennandi verkefni vera í undirbúningi hjá félaginu sem kalli á markvissa miðlun og samskipti á næstu misserum.
