1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

4
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

5
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

6
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

7
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

8
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

9
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

10
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Til baka

Kaffimógull ákærður fyrir að drekkja níu ára dóttur

Drekkti dóttur sinni í mýri til að losna við meðlagsgreiðslur

Melina_Frattolin_9 ára og faðir hennar
Melina Frattolin níu ára með föður sínumGrátbað móður sína um að fara ekki í ferðina
Mynd: Instagram

Réttarhöld standa nú yfir í New York-fylki yfir Luciano Frattolin, 45 ára stofnanda kaffifyrirtækisins Gambella, sem ákærður er fyrir að hafa drekkt níu ára dóttur sína, Melinu Frattolin út í mýri. Saksóknarar halda því fram að Frattolin hafi skipulagt morðið til þess að sleppa við að greiða meðlag með stúlkunni.

Lík Melinu fannst í júlí árið 2025 nærri Eagle Lake í bænum Ticonderoga. Fyrir dómi lýsti réttarmeinarfræðingurinn, dr. Michael Sikirica, því að lungu, kok og magi stúlkunnar hefðu verið full af svartri leðju, gróðri og seti úr mýrinni. Hann staðfesti að dánarorsök hefði ótvírætt að henni hafi verið drekkt og að vísbendingar væru um að líki hennar hefði verið haldið niðri í hnédjúpu vatninu með steini.

Grátbað móður sína um að fara ekki

Kali Galanis, móðir Melinu, kom fyrir dóminn og lýsti því að dóttir sín hafa grátbeðið sig um að þurfa ekki að fara í fyrirhugaða ferð með föður sínum til heimalands hans, Eþíópíu, fyrr á árinu. Lögmaður móðurinnar hafði varað hana við hættunni á að Frattolin gæti haldið stúlkunni erlendis, og eftir að Melina greindi frá ýmsum ógnvekjandi ummælum föðurins, ákvað móðirin að banna ferðina. Í kjölfarið var samþykkt að ferðast þess í stað til New York, sem saksóknarar segja að hafi verið hluti af blekkingu föðurins til að ráða henni bana.

Breytti framburði sínum í þrettán tíma yfirheyrslu

Frattolin tilkynnti að dóttir sín væri týnd þann 19. júlí 2025 og hélt því fram að tveir menn á hvítum sendiferðabíl hefðu rænt henni á meðan þau voru á leið heim til Kanada. Hann sagði ránið hafa átt sér stað þegar hann lagði bíl sínum við þjóðveginn til að kasta af sér vatni.

Grunnsemdir vöknuðu fljótlega vegna misræmis í sögu hans. Eftir þrettán klukkustunda yfirheyrslu viðurkenndi Frattolin að hafa skipt um föt vegna „svita“. Lögregla telur hins vegar að hann hafi skipt um föt eftir að hafa vaðið út í mýrina. Blaut föt hans fundust síðar í ruslapoka meðfram milliríkjavegi 87, þeirri leið sem hann ók á leið sinni til Montreal. Þá sýna farsímagögn saksóknara að Frattolin var staddur við vatnið þar sem líkið fannst, á þeim tíma sem hann sagði stúlkunni hafa verið rænt.

Neitar sök

Saksóknarar hafa fært rök fyrir því að Frattolin hafi talið bæði fyrrverandi eiginkonu sína og dóttur glíma við geðræn vandamál og hafi skipulagt verknaðinn mánuðum saman. Við réttarhöldin forðaðist Frattolin að líta á myndir af líki dóttur sinnar en hefur lýst sig saklausan. Verjendur hans halda fast við þá sögu að stúlkunni hafi verið rænt.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ákærður fyrir að stela strætisvagni
Innlent

Ákærður fyrir að stela strætisvagni

Ákæruvaldið krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar
Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg
Heimur

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll
Myndir
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

Forvitinn um ólæsta bíla og kom með óvenjulega afsökun
Innlent

Forvitinn um ólæsta bíla og kom með óvenjulega afsökun

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Heimur

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg
Heimur

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg

Sýndi fram á vinskap Howard Ludnick og Jeffrey Epstein
Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Loka auglýsingu