1
Fólk

Ældi eftir Vikuna með Gísla Marteini

2
Pólitík

Færsla Jóns Péturs um ungar konur vekur úlfúð

3
Heimur

14 látnir eftir flugslys

4
Innlent

Innkalla núðlur vegna aðskotaefna

5
Fólk

Höllin lækkuð um 45 milljónir

6
Heimur

Fékk líkamsleifar eiginmannsins og sonar í skókössum

7
Fólk

Huginn Þór tekinn til gjaldþrotaskipta

8
Minning

Edda minnist Björgvins Halldórssonar

9
Pólitík

Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi grunaður um lögbrot

10
Innlent

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra

Til baka

Kanarífarar minnast Klöru á Klörubar

„Hún var hjálpsöm við Íslendinga og leysti öll vandamál sem upp komu fyrr og síðar.“

Kerti
Mynd: Shutterstock

Klara Baldursdóttir, sem margir þekktu sem Klöru á Klörubar, er látin, 74 ára að aldri. Hún lætur eftir sig tvo syni, Eirík og Jordans. Vísir sagði frá andlátinu.

Klara
Klara BaldursdóttirFjölmargir minnast Klöru.
Mynd: Facebook

Klara fæddist 22. janúar 1951 og var næstyngst fimm systkina. Foreldrar hennar voru Baldur Jónsson kaupmaður og Hansína Helgadóttir. Klara ólst upp á höfuðborgarsvæðinu, en dvaldi einnig um tíma á Spáni sem barn.

Árið 1969 flutti Klara til Spánar og aftur árið eftir, í lengri dvöl. Þar hitti hún síðar eiginmann sinn, Francisco Casadeus, árið 1971. Þau settust að á Kanaríeyjum og stofnuðu saman barinn Cosmos, sem á meðal Íslendinga var alltaf kallaður Klörubar. Þau eignuðust tvo syni og lifðu þar saman til ársins 2021, þegar Francisco lést.

Í viðtali við Rakel Sveinsdóttur árið 2024 sagði Klara frá lífi sínu og tengslum við íslenskt samfélag á Kanarí. Hún var víða álitin óformlegur fulltrúi Íslendinga á svæðinu og var sæmd aðild að Íslendingafélaginu á Kanarí sem heiðursfélagi.

Fréttir af andláti Klöru bárust fyrst frá Jordi Hans, sem birti minningarorð í Facebook-hópnum Kanaríflakkarar:

„Með djúpri sorg tilkynnum við að elskuleg vinkona okkar og dásamleg kona, Klara Baldursdóttir, er fallin frá,“ skrifaði hann.

Minningarstund varhaldin á Kanaríeyjum í gær til heiðurs Klöru.

Meðlimir Facebook-hópsins Kanaríflakkarar hafa verið að minnast Klöru í athugasemdum en Ingólfur nokkur segir meðal annars:

„Kæru bræður Jordi og Eirikur. Við Hanna vottum ykkur okkar innilegustu samúð vegna fráfalls móður ykkar hinni elskulegu Klöru. Við söknum hennar og svo mun verða hjá þúsundum Íslendinga sem hafa kynnst henni á mörgum áratugum. Hún var hjálpsöm við Íslendinga og leysti öll vandamál sem upp komu fyrr og síðar.“

Margrét nokkur skrifaði: „Elsku Klara okkar farin, það er svo ótrúlegt og erfitt að hugsa sér lífið án hennar. Ekki bara vegna þess hve hjálpsöm hún var öllum sem á þurftu að halda heldur var hún svo yndisleg manneskja. Blessuð sé minning hennar. Elsku Eiríkur og Jordi Hans mínar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar.“

Þá skrifaði Hjálmfríður nokkur einnig fallega athugasemd:

„Elsku Klara hún skilur eftir sig stórt skarð. Margir sem treysta sér ekki ad vera á Canari án hennar hjálpar. Hún var yndisleg. Innnilegar samúđarkveðjur til ykkar. Blessuđ sé minning hennar.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra
Innlent

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra

Hann játaði brot sín
Fæðingartíðni í sögulegu lágmarki í Þýskalandi
Heimur

Fæðingartíðni í sögulegu lágmarki í Þýskalandi

Kýldi mann ítrekað í andlitið með lykli
Innlent

Kýldi mann ítrekað í andlitið með lykli

Össur hæðist að færslu Jóns Péturs
Pólitík

Össur hæðist að færslu Jóns Péturs

Sameinuðu arabísku furstadæmin segja sig úr OPEC
Heimur

Sameinuðu arabísku furstadæmin segja sig úr OPEC

Arnar Þór varpar fram samsæriskenningu um skotárásina á Trump
Innlent

Arnar Þór varpar fram samsæriskenningu um skotárásina á Trump

Krónprins Noregs einnig sagður tengjast Epstein
Heimur

Krónprins Noregs einnig sagður tengjast Epstein

Jarðneskar leifar Ashlee Jenae afhentar fjölskyldu hennar
Heimur

Jarðneskar leifar Ashlee Jenae afhentar fjölskyldu hennar

Stjórnandi tæknirisa drukknaði í Volguá
Heimur

Stjórnandi tæknirisa drukknaði í Volguá

Innkalla sveppi vegna listeríu
Innlent

Innkalla sveppi vegna listeríu

Hvetur Sjálfstæðisflokkinn til að hafna „þvælu“ Jóns Péturs
Pólitík

Hvetur Sjálfstæðisflokkinn til að hafna „þvælu“ Jóns Péturs

Sigmundur Davíð ósáttur við samstarf fjölmiðla
Pólitík

Sigmundur Davíð ósáttur við samstarf fjölmiðla

Þýskur ferðamaður látinn eftir bit
Heimur

Þýskur ferðamaður látinn eftir bit

Innlent

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra
Innlent

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra

Hann játaði brot sín
Réttarhöld vegna Múlaborgarmálsins hefjast í dag
Innlent

Réttarhöld vegna Múlaborgarmálsins hefjast í dag

Kýldi mann ítrekað í andlitið með lykli
Innlent

Kýldi mann ítrekað í andlitið með lykli

Arnar Þór varpar fram samsæriskenningu um skotárásina á Trump
Innlent

Arnar Þór varpar fram samsæriskenningu um skotárásina á Trump

Innkalla sveppi vegna listeríu
Innlent

Innkalla sveppi vegna listeríu

Alexander dæmdur fyrir vopnað rán
Innlent

Alexander dæmdur fyrir vopnað rán

Loka auglýsingu