1
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

2
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

3
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

4
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

5
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

6
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

7
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

8
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

9
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

10
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Til baka

Svara versnandi líðan barna

Stærsta umhverfismenntaverkefni í heimi í Mosfellsbæ

Börn í náttúrinni
Færa kennslustofuna út í náttúruna
Mynd: Unsplash/Josue Michel

Grænfáninn efnir til spennandi ráðstefnu þann 2. október næstkomandi í Hlégarði í Mosfellsbæ, þar sem sjónum verður beint að útikennslu og vellíðan í skólastarfi. Ráðstefnan kemur á mikilvægum tímapunkti en ný skýrsla heilbrigðisráðuneytisins sýnir vaxandi lýðheilsuáskoranir og versnandi andlega líðan meðal barna og ungmenna á Íslandi.

Skráningarfrestur á ráðstefnuna er til og með mánudeginum 28. september, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Landvernd.

Hvað er Grænfáninn?

Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning fyrir skóla sem vinna markvisst að umhverfismálum og menntun til sjálfbærni. Um er að ræða stærsta umhverfismenntaverkefni í heimi og hafa Sameinuðu þjóðirnar útnefnt Grænfánann sem helsta innleiðingartæki menntunar til sjálfbærni á heimsvísu.

Útikennsla sem forvörn og svar við lýðheilsuvanda

Rannsóknir sýna bein tengsl útiveru við aukna andlega vellíðan og einbeitingu nemenda. Með því að færa kennslustofuna út í náttúruna fá nemendur dýpri skilning á lífbreytileika og skapa sterka tengingu við náttúruna, sem er lykillinn að því að ýta undir umhverfisvitund.Í ljósi nýrrar skýrslu heilbrigðisráðuneytisins – þar sem fram kemur að andlegri líðan barna hafi hrakað á undanförnum áratugum og að hreyfingu og mataræði sé ábótavant – getur útikennsla nýst sem mikilvægt tæki í forvörnum og aðgerðum. Hún ýtir undir fjölbreytta kennslu, hreyfingu og vitneskju um heilbrigða lifnaðarhætti.

Öflugir fyrirlesarar á dagskrá

Á dagskrá ráðstefnunnar eru fróðleg lykilerindi og líflegar vinnustofur um tengsl útikennslu við vellíðan, lífbreytileika og náttúrutengingu:

  • Staðartengd útimenntun og vísindalæsi – Edda Elísabet Magnúsdóttir, lektor í kennslu náttúruvísinda við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og PhD í líffræði.
  • Bækurnar um Sóley og Fífu: Innblástur fyrir fræðslu, góð samskipti og leik í náttúrunni – Þorbjörg Sandra Bakke, teymisstjóri hringrásarhagkerfisins hjá Orku- og umhverfisstofnun og rithöfundur.
  • Áhrif umhverfis á heilsu – Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir og kennari við Háskóla Íslands og Háskóla Reykjavíkur.

Að erindunum loknum standa þátttakendum til boða fjölbreyttar vinnustofur fyrir mismunandi skólastig ásamt menntabúðum. Þar verður hægt að flakka á milli kynningabása og kynna sér meðal annars jóga fyrir börn, námsefni og dæmi um vel heppnuð verkefni.

Að sögn aðstandenda gefst hér kjörið tækifæri fyrir skólafólk, kennara og önnur áhugasöm til að viða að sér nýjustu þekkingu þegar kemur að útikennslu og vellíðan nemenda.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hildi sagt upp hjá borginni
Ný frétt
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

Er „sár og leið og reið og vonsvikin“ eftir langan starfsferil.
Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

María Lilja rekin af Samstöðinni
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm
Innlent

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO
Myndir
Innlent

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu
Heimur

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni
Ný frétt
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

Er „sár og leið og reið og vonsvikin“ eftir langan starfsferil.
Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

María Lilja rekin af Samstöðinni
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm
Innlent

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO
Myndir
Innlent

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO

Loka auglýsingu