
Tveir fyrrverandi kennarar við sama grunnskóla í Wisconsin í Bandaríkjunum hafa nú játað alvarleg kynferðisbrot gegn börnum. Konurnar störfuðu báðar sem kennarar í fimmta bekk við River Crest Elementary School og voru jafnframt vinkonur.
Abigail Faust játaði fyrir dómi á mánudag sök vegna tælingar barns og kynferðisbrots gegn barni undir 16 ára aldri. Hún viðurkenndi að hafa brotið kynferðislega gegn tveimur 15 ára drengjum. Fjölskylda annars þeirra hafði ráðið Faust til að starfa sem barnfóstra.
Fyrrverandi samstarfskona hennar og vinkona, Madison Bergmann, hafði áður játað sök vegna brota sem tengdust 11 ára nemanda. Bergmann var dæmd í sex ára fangelsi vegna málsins.
Saksóknarar hafa jafnframt greint frá því að Faust og Bergmann hafi átt í textaskilaboðasamskiptum þar sem þær ræddu samskipti sín við drengina.
Faust hafði einnig verið sökuð um óviðeigandi hegðun gagnvart einum nemenda sinna í fimmta bekk. Meðal annars var því haldið fram að hún hefði haldið drengnum eftir kennslustund og kysst hann á kinnina. Þeir ákæruliðir voru hins vegar felldir niður sem hluti af samkomulagi hennar við ákæruvaldið.
Þá hafði Faust verið sökuð um að hafa vitað af kynferðislegum samskiptum Bergmann við 11 ára drenginn án þess að tilkynna þau til yfirvalda.
Faust sagði fyrir dómi að hegðun hennar hefði ekki einfaldlega verið mistök eða afleiðing slæmrar dómgreindar. Hún kvaðst nú vera í meðferð þar sem hún reyndi að skilja þær ákvarðanir sem hún hefði tekið.
Áætlað er að refsing Faust verði ákveðin í desember.
