1
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

2
Sport

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

3
Heimur

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford

4
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

5
Pólitík

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

6
Innlent

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag

7
Innlent

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið

8
Pólitík

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu

9
Innlent

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

10
Heimur

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú

Til baka

Knattspyrnukappi flutti frá stríðshrjáðri Bosníu til Fáskrúðsfjarðar

„Að mínu mati er Ísland paradís á jörðu.“

Ifet-Nanac Mesatovic
Ifet MešetovićIfet er hæstánægður með lífið á Íslandi
Mynd: Facebook

Ifet Mešetović flutti frá Bosníu og Hersegóvínu til Íslands árið 2002, þá 36 ára gamall og á lokaspretti knattspyrnuferilsins. Hann varð fyrsti Bosníumaðurinn til að setjast að á Austurlandi og hefur búið á Fáskrúðsfirði allar götur síðan ásamt fjölskyldu sinni. Hann er í viðtali við Austurfrétt en allt viðtalið má lesa í Austurglugganum.

Ifet segir að upphaflega hafi hann aldrei gert ráð fyrir að dvölin á Íslandi yrði svona löng, en lífið hafi þróast á annan veg.

„Í byrjun hugsaði ég að dvöl mín á Íslandi yrði styttri, en eftir því sem tíminn leið, ár eftir ár, gekk allt vel. Ég gat lifað góðu lífi hér. Fólkið var gott, alltaf tilbúið að hjálpa, aldrei nein vandamál. Ég fann aldrei fyrir neins konar óöryggi,“ segir Ifet.

Eiginkona hans, Zuhrijeta Mešetović, og börn þeirra tvö komu til Íslands hálfu ári síðar eftir að honum hafði verið tryggð vinna og aðstaða hjá knattspyrnufélaginu Leikni Fáskrúðsfirði.

Ifet rifjar upp að fyrstu árin hafi fjölskyldan þurft að endurnýja dvalarleyfi sitt árlega áður en hún fékk varanlegt leyfi.

„Vinur minn samdi um að við kæmum til Fáskrúðsfjarðar, að ég myndi spila fótbolta fyrir Leikni í þriðju deild og fólk hjá bænum og félaginu lofaði að ég stæði mig sem leikmaður og í vinnu þá yrði fjölskyldan sótt. Og það var algjörlega staðið við það.“

Hann segir flutninginn til Íslands hafa markað nýtt upphaf eftir erfið ár á Balkanskaga í kjölfar stríðsins í Bosníu en þar hafði hann verið atvinnumaður í knattspyrnu.

„Enginn gat trúað því, ekki einu sinni ég sjálfur, að ég gæti byrjað nýjan feril orðinn 36 ára gamall. Það var ekki ferill þar sem ég skrifaði undir atvinnusamning, en ég bjó mér til nýjan feril í lífinu. Mér fannst eins og ég hefði unnið í lottói. Á þessum tíma, eftir stríðsátökin í Bosníu og Hersegóvínu, að koma til svona fallegs, friðsæls, stöðugs lands, að fá strax pappíra og atvinnuleyfi, að vera ekki háður neinum, að geta lifað og starfað eðlilega, að geta komið með fjölskylduna - það er mér meira virði en stóri potturinn í lottóinu,“ segir Ifet um komu sína til Íslands.

Knattspyrnuferill hans stöðvaðist um tíma þegar stríðið hófst árið 1992 og heimabær hans varð hertekinn. Fjölskyldan neyddist til að yfirgefa heimili sitt og gat ekki snúið aftur fyrr en fimm árum síðar.

„Í Bosníu og Hersegóvínu hófust stríðsátökin árið 1992 og þá byrjaði fólk að skiptast eftir þjóðerni. Við vorum neydd til að yfirgefa heimili okkar. Við bjuggum um 10 kílómetra frá víglínunni sem skildi að tvær stríðandi fylkingar. Ég kom ekki í húsið mitt í fimm ár.“

Þegar fjölskyldan sneri loks aftur heim eftir undirritun Dayton-friðarsamkomulagsins árið 1997 hafi aðkoman verið átakanleg.

„Snemma árs 1997 var Dayton-samkomulagið undirritað og þá komum við fyrst aftur heim og það sem við sáum var sláandi. Þá kom ég inn í húsið mitt og vildi hvergi annars staðar vera. Það var vetur þegar við gengum heim, um 7-8 kílómetra. Við áttum ekkert á þeim tíma. Tengdafaðir konunnar minnar gaf okkur málmofn, við settum teppi fyrir glugga og girtum fyrir útidyrnar til að dýr kæmust ekki inn. Svona bjuggum við í nokkurn tíma áður en við byrjuðum endurbæturnar,“ segir hann.

Ifet segir að það hafi verið stór ákvörðun að flytja til lands sem hann þekkti lítið sem ekkert til.

„Það var mikið að hugsa um. Hugsið ykkur að flytjast til lands sem þú finnur ekki einu sinni á korti. Það er stórt skref að ákveða slíkt. En miðað við ástandið eftir stríð held ég að maður hafi ekki haft mikið val,“ segir hann.

Hann viðurkennir að fjölskyldan hafi saknað hins bosníska samfélagsanda, fjölskyldulífsins og mannlífsins á götum úti, en segir jafnframt að Ísland hafi gefið þeim öryggi og tækifæri.

„Við söknuðum bosníska hugarfarsins. En maður veit að maður getur ekki fengið allt. Það þarf að fórna mörgu ef maður vill ná árangri. Að þurfa að takast á við vandamál og allt mögulegt. Ég þakka þessu fólki fyrir að taka á móti mér svona, því við erum jú útlendingar. Að mínu mati er Ísland paradís á jörðu.“

Fyrstu kynni hans af Íslandi voru þó nokkuð dramatísk. Þegar hann lenti á Íslandi í maí árið 2002 rigndi mikið og ferðin austur á firði virtist honum endalaus.

„Það var maí og það rigndi.. Þá spurði ég konuna mína hvort himinninn gréti því ég hefði yfirgefið landið mitt? Þá hataði ég sjálfan mig fyrir að neyðast til að fara svona langt, en ég var með ákveðið markmið.“

Dvölin sem átti upphaflega að vara í eitt til tvö ár hefur nú staðið yfir í 24 ár.

„Ég sagði við sjálfan mig að við yrðum í 1-2 ár, en að lokum höfum við verið hér í 24 ár.“

Lengri útgáfa birtist í Austurglugganum. Hægt er að panta áskrift hér.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker
Heimur

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker

„Ég hef öskrað þar til mér sviður í hálsinum“
Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs
Heimur

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs

Reyndi að komast inn í íbúð í Kópavogi, vopnaður hnífi og hamri
Innlent

Reyndi að komast inn í íbúð í Kópavogi, vopnaður hnífi og hamri

Páll og Selma Eir eiga von á dreng
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks
Pólitík

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga
Myndband
Sport

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið
Innlent

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif
Viðtal
Stjórnandinn

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu
Pólitík

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag
Innlent

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú
Heimur

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú

Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

„Lítill gaur í bumbu“
Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

Dýr miðborgardraumur með leyndum garði til sölu
Myndir
Fólk

Dýr miðborgardraumur með leyndum garði til sölu

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum
Myndir
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli
Myndir
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

Loka auglýsingu