24 ára kona hlaut alvarleg brunasár þegar eldur kviknaði við keisaraskurð á sjúkrahúsi í Prag í Tékklandi. Atvikið átti sér stað 25. ágúst og hefur sjúkrahúsið hafið rannsókn á því.
Konan gekkst undir bráðakeisaraskurð á Bulovka-sjúkrahúsinu vegna fylgikvilla við fæðingu. Tékkneski miðillinn Denik N greinir frá því að kviknað hafi í sótthreinsiefni sem notað var við aðgerðina þegar starfsfólk beitti skurðtæki til að stöðva blæðingu.
Konan hlaut brunasár á kynfærum, lærum, síðum og neðri hluta kviðar. Barnið sakaði hins vegar ekki.
Konan var í kjölfarið flutt á annað sjúkrahús í Prag, þar sem sérhæfð brunadeild er starfrækt. Hún hefur síðan verið flutt aftur á Bulovka-sjúkrahúsið.
Talskona sjúkrahússins segir konuna vera í stöðugu ástandi og ekki þurfa á gjörgæslu að halda. Hún dvelur nú á almennri deild ásamt barni sínu.
Bulovka-sjúkrahúsið komst einnig í fréttir árið 2024 þegar þungunarrof var fyrir mistök framkvæmt á rangri konu eftir að tveimur konum hafði verið ruglað saman en konurnar voru báðir af asískum uppruna. Sjúkrahúsið greiddi konunni síðar bætur vegna mistakanna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir