Karlmaður hefur verið dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á kvenkyns fangavörð í fangageymslu lögreglunnar í Reykjavík í lok nóvember árið 2024. Dómur í málinu var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur eftir að maðurinn játaði brotið skýlaust.
Samkvæmt ákæru héraðssaksóknara réðst maðurinn, Rytis Barkauskas, á fangavörðinn sem var við skyldustörf í fangageymslu lögreglustöðvarinnar í Reykjavík laugardaginn 30. nóvember 2024. Hann sló fangavörðinn hnefahöggi í andlitið með þeim afleiðingum að hún hlaut bólgu á efri og neðri vör, sár innanvert í vörum og eymsli yfir kinnbeini.
Fyrir dómi játaði Barkauskas brotið án fyrirvara. Fram kom í sakavottorði hans að hann hefði ekki áður hlotið dóm hér á landi fyrir refsiverðan verknað.
Með dómi var honum gert að sæta 60 daga fangelsi en fullnustu refsingarinnar var frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi hann almennu skilorði.
Þá var honum gert að greiða fangaverðinum 400 þúsund krónur í miskabætur auk vaxta. Einnig var honum gert að greiða 248 þúsund krónur í málskostnað og tæpar 283 þúsund krónur í málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns.
