1
Innlent

Auður stal milljónum frá stéttarfélagi

2
Fólk

Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu

3
Menning

Stór orð Siggu Beinteins

4
Landið

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu

5
Innlent

Vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna en fékk nei

6
Heimur

Hjón urðu fyrir eldingu á kvöldgöngu í Flórída

7
Sport

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar

8
Innlent

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið

9
Heimur

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu

10
Heimur

Breskri móður bjargað úr haldi mannræningja

Til baka

Dökkir Íslendingar tjá ótta eftir sigur hægriflokkanna

„Ég er blandaður, brúnn hommi og mér finnst ég ekki alveg 100% öruggur“

Friðrik Agni Árnason
Friðrik Agni ÁrnasonFriðrik er uggandi yfir úrslitum kosninganna
Mynd: Aðsend

Ingólfur Shahin, forstjóri Travelshift, og Friðrik Agni Árnason, dansari og verkefnastjóri hjá UNICEF, segjast báðir óttaslegnir eftir niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna um helgina, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn bættu víða við sig fylgi.

Ingólfur Shahin
Mynd: Facebook

Í ítarlegri Facebook-færslu segir Ingólfur að niðurstöðurnar vekji með sér ótta sem einstaklingi með blandaðan bakgrunn.

„Ótti, þannig myndi ég lýsa niðurstöðum þessara kosninga fyrir Íslendinga með blandaðan bakgrunn. Það er skelfilegt að sjá nær helming borgarbúa kjósa flokka sem hafa lýst yfir kynþáttahatri og ítrekað farið með fleipur um heil menningarsamfélög í þeim tilgangi einum að hræða fólk til að kjósa sig,“ skrifar hann.

Hann segir sérstaklega sárt að sjá fólk úr eigin vinahópi og fjölskyldu styðja flokka sem hann telur hafa gert útlendingaandúð og stuðning við Ísrael að hluta af stefnu sinni.

„Til þeirra sem segjast styðja þessa flokka nema þegar kemur að útlendingaandúð og stuðningi þeirra við Ísrael, þá segi ég þetta: kynþáttahatur og þjóðarmorð geta aldrei verið ‘aukaatriði’,“ skrifar Ingólfur og bætir við að „þegar samfélag byrjar að umbuna slíku hatri með atkvæðum, þá er hættan ekki lengur framtíðarsviðsmynd, heldur er hún þegar byrjuð.“

Þá gagnrýnir hann einnig Hildur Björnsdóttir, sem líkleg er til að verða næsti borgarstjóri Reykjavíkur.

„Vissulega er Hildur Björnsdóttir, tilvonandi borgarstjóri, frambærileg og að mörgu leyti glæsileg. Hún hefði samt getað komið fram eftir að ljóst varð að hún yrði borgarstjóri og sagst ætla að vera leiðtogi fyrir alla Reykvíkinga, sama hvaða uppruna eða kynhneigð fólk hefði,“ skrifar hann.

Ingólfur segir jafnframt að hann hugsi þessa dagana um að vera reiðubúinn að yfirgefa landið með börnum sínum ef samfélagið þróist áfram í þessa átt.

„Því sagan byrjar aldrei með fangabúðum eða ofsóknum … hún byrjar með afmennskun,“ skrifar hann.

Hinsegin og brúnn

Í sambærilegum tón skrifar Friðrik Agni að hann finni fyrir óöryggi í eigin heimalandi eftir þróun síðustu missera í samfélagsumræðunni.

„Já ég er óttasleginn. Ég er blandaður, brúnn hommi og mér finnst ég ekki alveg 100% öruggur, hér, heima í mínu upprunalandi,“ skrifar hann.

Hann segir orðræðuna í samfélaginu hafa stuðlað að afmennskun fólks sem falli ekki að hefðbundnum hugmyndum um það hvernig Íslendingur eigi að vera.

„Kosningarnar sanna það að þessi ótti er ekki ástæðulaus. Og það er ekki einungis hvernig maður hefur lesið í kommentakerfi landsins heldur er þetta tilfinningin á götunni. Augnaráð og framkoma,“ skrifar Friðrik.

Þá segir hann að þróunin sé ekki bundin við Ísland heldur sjáist víða um heim.

„Það hvarflar stundum að manni að færa sig um set en málið er bara að þetta er staðan í heiminum. Þannig maður spyr sig. Þurfum við bara að berjast harðar fyrir okkur sjálf, hafa hærra?“ skrifar hann að lokum.

Óheppilegt orðalag

Í athugasemd við færslu sína bætir Friðrik Agni því við að hann sé meira að tala um Miðflokkinn en Sjálfstæðisflokkinn og að hann telji Hildi Björnsdóttur ekki vera rasista.

„Og P.S. ég er kannski meira að snúa mér að málefnum MF heldur Sjálfstæðis og ég tel nú alls ekki að hún Hildur Björnsdóttir sé rasisti. Bara svo það sé sagt. Þetta súkkulaðikleinu orðalag er samt afar óheppilegt yfir höfuð og kannski bara hægt að viðurkenna það - sérstaklega í þessu samhengi og í því pólitíska umhverfi sem við búum í.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Óánægður fíkniefnakaupandi mætti á lögreglustöð og óskaði eftir efnagreiningu
Innlent

Óánægður fíkniefnakaupandi mætti á lögreglustöð og óskaði eftir efnagreiningu

Trump við Tucker Carlson: „Við deyjum öll hvort sem er“
Myndband
Heimur

Trump við Tucker Carlson: „Við deyjum öll hvort sem er“

Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur karlmönnum
Innlent

Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur karlmönnum

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu
Heimur

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu

Ísraelsku heimildarmyndinni NAZA dreift ókeypis á netinu
Heimur

Ísraelsku heimildarmyndinni NAZA dreift ókeypis á netinu

Sagði Jay-Z hafa nauðgað sér en þau höfðu aldrei hist
Heimur

Sagði Jay-Z hafa nauðgað sér en þau höfðu aldrei hist

Hægri öfgamaður neitar að hafa eyðilagt bát
Heimur

Hægri öfgamaður neitar að hafa eyðilagt bát

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur
Innlent

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið
Innlent

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið

Síðustu ferðir Noah litla raktar
Heimur

Síðustu ferðir Noah litla raktar

Myndband frá hafnaboltaleik vekur hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum
Myndband
Heimur

Myndband frá hafnaboltaleik vekur hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum

Kettlingur gerður að lukkudýri verktakafyrirtækis eftir björgun
Heimur

Kettlingur gerður að lukkudýri verktakafyrirtækis eftir björgun

Vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna en fékk nei
Innlent

Vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna en fékk nei

Pólitík

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn
Pólitík

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn

„Staðreyndirnar tala sínu máli“
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn
Pólitík

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn

Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist
Pólitík

Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist

Össur segir Karl Gauta hafa skotið úr launsátri
Pólitík

Össur segir Karl Gauta hafa skotið úr launsátri

Tóku saman föggurnar og fluttu í miðbæinn
Pólitík

Tóku saman föggurnar og fluttu í miðbæinn

Loka auglýsingu