1
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

2
Minning

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá

3
Innlent

Eiríkur sjúkraþjálfari falsaði færslur og fékk milljónir greiddar

4
Minning

Dagný Ósk Vestmann er látin

5
Innlent

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi

6
Innlent

Íslenskur karlmaður dæmdur fyrir gróft barnaníðsefni í símanum

7
Innlent

Reykjavíkurborg segir upp 15 leigusamningum við listafólk á sama tíma

8
Fólk

Hnísur leika sér fyrir utan 100 milljóna króna hús

9
Innlent

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur

10
Heimur

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin

Til baka

Árni, Daníel, Davíð og John dæmdir í umfangsmiklu fíkniefnamáli

Meðal þess sem fannst voru tæp 16 kíló af maríhúana og dagbækur með skuldalistum

Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur sá um málið
Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Fjórir menn hafa verið dæmdir í umfangsmiklu fíkniefnamáli sem Héraðsdómur dæmdi í fyrir stuttu.

Sakborningarnir voru þeir Árni Khanh Minh Dao, Daníel Ramadhan Sigurgeirsson, Davíð Viet Quoc Davíðsson og John Minh Tuan Dang. Samkvæmt ákæru höfðu þeir staðið saman að umfangsmikilli dreifingu fíkniefna um ótilgreindan tíma. Þeir voru sakaðir um að hafa í félagi útvegað, tekið við, varðveitt, pakkað, dreift og selt margvísleg fíkniefni.

Við húsleitir í Reykjavík og Kópavogi, auk leitar í bifreið sem tengdist málinu, lagði lögregla hald á mikið magn fíkniefna og búnaðar sem talinn var tengjast starfseminni. Meðal þess sem fannst voru rúm 15,9 kíló af maríhúana, yfir sex kíló af kannabisblönduðu súkkulaði, hundruð kannabisbrjóstsykra og gúmmíbangsa, auk amfetamíns, ketamíns, kókaíns, MDMA, LSD og metamfetamíns. Þá fundust einnig kannabisvökvar, lyfjahylki með kannabisefnum, sveppir og fjöldi taflna af óþekktri gerð.

Lögregla lagði jafnframt hald á fjármuni í íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum, auk búnaðar sem tengdist fíkniefnaframleiðslu og dreifingu. Þar á meðal voru lofttæmingarvélar, vogir, prentarar, límmiðar, pökkunarbúnaður, vélar til að vefja kannabisvindlinga, öryggismyndavélakerfi og fartölvur. Einnig fundust dagbækur með skuldalistum og upplýsingum um heildsöluviðskipti.

Þyngstan dóm hlaut Árni Khanh Minh Dao sem var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi.

Davíð Viet Quoc Davíðsson var dæmdur í þriggja ára og fjögurra mánaða fangelsi.

Daníel Ramadhan Sigurgeirsson var dæmdur í 18 mánaða fangelsi. Fullnustu 15 mánaða var þó frestað skilorðsbundið til þriggja ára, að því gefnu að hann haldi almenn skilorð hegningarlaga. John Minh Tuan Dang hlaut 20 mánaða fangelsisdóm, en 17 mánuðum var frestað með sambærilegum skilorðsskilyrðum.

Í dóminum var jafnframt kveðið á um upptöku allra fíkniefna, fjármunanna og búnaðarins sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Árni Þór Grétarsson er fallinn frá
Minning

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá

Kveðja frá Handknattleiksdeild Selfoss
Dagný Ósk Vestmann er látin
Minning

Dagný Ósk Vestmann er látin

Reykjavíkurborg segir upp 15 leigusamningum við listafólk á sama tíma
Innlent

Reykjavíkurborg segir upp 15 leigusamningum við listafólk á sama tíma

Vildi komast að því hverjir skoðuðu sjúkraskrána
Innlent

Vildi komast að því hverjir skoðuðu sjúkraskrána

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn
Pólitík

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn

Sex handteknir þegar mótmæli gegn hælisleitendum fóru úr böndunum
Heimur

Sex handteknir þegar mótmæli gegn hælisleitendum fóru úr böndunum

Reyndir heimilislæknar taka við stjórnunarstöðum hjá HSN
Landið

Reyndir heimilislæknar taka við stjórnunarstöðum hjá HSN

Flaug til Tenerife en var handtekinn við lendingu
Heimur

Flaug til Tenerife en var handtekinn við lendingu

Sex einföld ráð sem geta bætt nætursvefninn
Fólk

Sex einföld ráð sem geta bætt nætursvefninn

Valli kallar alla í stórsöng í Spönginni
Menning

Valli kallar alla í stórsöng í Spönginni

Störfum í heilbrigðisþjónustu fjölgar á meðan önnur ríkisstörf standa í stað
Innlent

Störfum í heilbrigðisþjónustu fjölgar á meðan önnur ríkisstörf standa í stað

Svakalegasta lestrarkeppni landsins hafin
Innlent

Svakalegasta lestrarkeppni landsins hafin

Sex Íslendingar í gæsluvarðhald eftir umfangsmiklar fíkniefnaaðgerðir
Innlent

Sex Íslendingar í gæsluvarðhald eftir umfangsmiklar fíkniefnaaðgerðir

Innlent

Reykjavíkurborg segir upp 15 leigusamningum við listafólk á sama tíma
Innlent

Reykjavíkurborg segir upp 15 leigusamningum við listafólk á sama tíma

„Eins og borgin sé að losa sig við allt listalíf á einu bretti“
Stal málverki við Barónsstíg og flúði lögreglu á stolnum bíl
Innlent

Stal málverki við Barónsstíg og flúði lögreglu á stolnum bíl

Vildi komast að því hverjir skoðuðu sjúkraskrána
Innlent

Vildi komast að því hverjir skoðuðu sjúkraskrána

Störfum í heilbrigðisþjónustu fjölgar á meðan önnur ríkisstörf standa í stað
Innlent

Störfum í heilbrigðisþjónustu fjölgar á meðan önnur ríkisstörf standa í stað

Svakalegasta lestrarkeppni landsins hafin
Innlent

Svakalegasta lestrarkeppni landsins hafin

Sex Íslendingar í gæsluvarðhald eftir umfangsmiklar fíkniefnaaðgerðir
Innlent

Sex Íslendingar í gæsluvarðhald eftir umfangsmiklar fíkniefnaaðgerðir

Loka auglýsingu