
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Mynd: Skjáskot/Ja.is
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á að spilið Magnetic frá BIGTOYS, vörunúmer BGR5664 HB-17, hefur verið tekið af markaði. Spilið uppfyllir ekki öryggiskröfur sem gerðar eru til leikfanga. Spilið inniheldur litla segla sem eru með of háum segulstyrk.
Ef barn gleypir tvo eða fleiri segla geta þeir dregist saman í meltingarvegi og valdið alvarlegum innvortis meiðslum eins og garnastíflu eða rofi á þörmum. Talið er að spilið sé í umferð á Íslandi.
Eigendur spilsins eru hvattir til að halda spilinu frá ungum börnum.
Mynd: HMS
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
