Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Umboðsmaður Alþingis óskar eftir skýringum frá Reykjavíkurborg

Í erindi umboðs­manns til borgarinnar kemur fram að nýlega hafi borist ábendingar vegna málsins

Hildur Björnsdóttir
Hildur Björns­dóttir Er borg­ar­stjóri Reykja­víkur Mynd: BHJ

Umboðs­maður Alþingis hefur óskað eftir skýringum frá Reykja­víkurborg vegna álagningar svonefnds auka­stöðugjalds á bifreiðar sem lagt hefur verið í gjald­skyld bílastæði þrátt fyrir að sýnilegt stæðis­kort fyrir hreyfi­hamlaða hafi verið í bifreiðinni.

Í erindi umboðs­manns til borgarinnar kemur fram að nýlega hafi borist ábendingar vegna málsins. Samkvæmt þeim hafi framkvæmd borgarinnar breyst eftir að tekin var í notkun sérstök eftirlits­bifreið með mynda­vélum sem greina skráningar­merki bifreiða og bera þau saman við upplýsingar um greiðslur fyrir bílastæði.

Umboðs­maður bendir á að samkvæmt umferðar­lögum sé handhafa stæðis­korts fyrir hreyfi­hamlaða heimilt að leggja ökutæki í gjald­skylt bifreiða­stæði án sérstakrar greiðslu, að uppfylltum skilyrðum laganna. Meðal annars þarf stæðis­kortið að vera sýnilegt í bifreiðinni.

Óskar umboðs­maður eftir upplýsingum um hvernig Reykja­víkurborg fari með mál þar sem stæðis­kort er sýnilegt en eftirlit fer fram með umræddri eftirlits­bifreið.

Sé auka­stöðugjald lagt á án þess að kannað sé hvort undanþága frá greiðslu­skyldu eigi við óskar umboðs­maður jafnframt eftir afstöðu borgarinnar til þess hvort málið hafi verið rannsakað með fullnægjandi hætti áður en ákvörðun um gjaldið er tekin.

Reykja­víkurborg hefur verið veittur frestur til 15. september til að svara erindi umboðs­manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning