Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Múlakaffi stefnir þekktum framkvæmdastjóra vegna hamborgaraskuldar

Í stefnunni kemur fram að skuldin hafi ekki fengist greidd þrátt fyrir innheimtu­tilraunir.

Múlakaffi við Hallarmúla
Múla­kaffi við Hall­ar­múla Mynd: BHJ

Múlakaffi ehf. hefur höfðað mál gegn þekktum framkvæmda­stjóra fyrir Héraðs­dómi Reykjaness og krefst þess að hann greiði fyrir­tækinu 391.950 krónur vegna ógreidds reiknings fyrir veitingar.

Samkvæmt stefnu, sem birt hefur verið í Lögbirtinga­blaðinu, má rekja kröfuna til kaupa framkvæmda­stjórans á tíu einingum af taco og borgurum. Reikningurinn var gefinn út 25. maí 2025 og hljóðaði upp á 391.950 krónur.

Múlakaffi krefst greiðslu fjár­hæðarinnar ásamt dráttar­vöxtum frá 25. maí 2025 til greiðslu­dags. Þá er einnig gerð krafa um máls­kostnað.

Í stefnunni kemur fram að skuldin hafi ekki fengist greidd þrátt fyrir innheimtu­tilraunir. Meðal gagna sem Múlakaffi hyggst leggja fram eru reikningur vegna kaupanna, innheimtu­viðvörun frá apríl síðastliðnum og innheimtu­bréf frá júní.

Stefnan var birt í Lögbirtinga­blaðinu þar sem framkvæmda­stjórinn er skráður óstaðsettur í hús samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Af þeim sökum hafi ekki verið unnt að birta honum stefnuna eftir almennum reglum.

Málið verður þingfest í Héraðs­dómi Reykjaness 14. október.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning