1
Peningar

Fjórtán í Mosfellsbæ sem synda í seðlum

2
Innlent

Ingunn Rut fékk fimm og hálfa milljón eftir pyntingar á manni

3
Heimur

Níu líffæri fjarlægð eftir ranga greiningu

4
Innlent

MAST varar við girnilegri súkkulaðiköku

5
Fólk

„Það var ekki til neinn peningur“

6
Fólk

Óska eftir tilboði í eitt eftirsóttasta hús Garðabæjar

7
Sport

Bjuggu til sögusagnir í kringum veikindi Jóns

8
Innlent

Reykvíkingur nær ekki í eiginmann sinn og vill skilja

9
Heimur

Kókaínkennari sviptur starfsréttindum

10
Peningar

Þrettán á Seltjarnarnesi sem eru loðin um lófanna

Til baka

Lætur Nei-sinna fá á baukinn í nýjum texta við sígilt lag

„Hafi hann sæll ort og megi þessi jákvæði bragur hljóma sem víðast.“

Hallgrímur Helgason
Hallgrímur HelgasonHallgrímur kann að ýfa fjaðrir.
Mynd: Golli

Hallgrímur Helgason, rithöfundur og listmálari hefur samið nýjan texta við lag Sveinbjörns Baldvinssonar, Lagið um það sem er bannað. Þar dregur Hallgrímur Nei-sinnana í ESB-umræðunni sundur og saman í háði.

Í nýja textanum, sem Hallgrímur birti fyrir síðustu helgi á Facebook, gerir hann stólpagrín að þeim sem ætla sér að segja Nei í komandi atkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður um Evrópusambandsaðild Íslands. Þar fær Morgunblaðið á baukinn sem og nafntogaðir Nei-sinnar. Þá minnist rithöfundurinn á systurnar, þær Guðríði og Gyðu, sem er hugarsmíði Eddu Björgvinsdóttur en þar leikur hún forherta forrréttindakonu, sem er með flest á hornum sér.

Höfundur upprunatextans, Sveinbjörn Baldvinsson hrósar Hallgrími fyrir nýja textann í Facebook-færslu þar sem hann segir:

„Ljómandi kvæði hjá Hallgrími Helgasyni. Hafi hann sæll ort og megi þessi jákvæði bragur hljóma sem víðast.“

Hér má sjá nýju útgáfu Hallgríms:

Lagið um það sem er bannað

Það má ekki prófa að segja já
og ekki einu sinni fá að sjá.
Við eigum bara að hlýða
og setja kross við Nei-ið,
þá ríka fólkið verður allt svo fegið.

Það má ekki skoða betra lán
og ekki gera samanburð við Spán
og ekki tala um fiskinn
án þess að spyrja herra
því hann er ekki okkar heldur þeirra.

Þetta neikvæða lið er svo skrýtið.
Það er alltaf að skamma mann.
Þó maður geri ekki neitt,
það er alltaf að skamma mann.

Það má ekki lækka verð á mat
því annars borðar þjóðin á sig gat.
Bara vera áfram
í tveimur þremur vinnum
og borga húsið þrisvar fjórum sinnum.

Það má ekki tala um ESB.
Það má bara hlusta á ÓRG
og lesa langar greinar
frá Halla, Sollu, Villa.
Þau eru klár og þekkja marga milla.

Þetta neikvæða lið er svo skrýtið.
Það er alltaf að skamma mann.
Þó maður geri ekki neitt,
það er alltaf að skamma mann.

Það má ekki prófa eitthvað nýtt.
Allt er svart þótt sýnist vera hvítt.
Og ekki kíkja í pakkann,
það fúla fyrirbæri.
Í honum eru bara tækifæri.

Það má ekki segja Guten Tag
og ekki finna ástina í Prag.
Bara vera heima
og borga krónuskattinn
því evran hún er verri en sjálfur skrattinn.

Þetta neikvæða lið er svo skrýtið.
Það er alltaf að skamma mann.
Þó maður geri ekki neitt,
það er alltaf að skamma mann.

Við eigum bara að hlusta á SFS
og þá sem voru á móti EES
en eru núna með því
og líka á ömmu og afa
sem hringja úr íbúðinni á Costa Brava.

Það má aldrei breyta neinu hér,
þá getur enginn vitað hvernig fer.
Því hér er best að búa
og best að eiga krakka
og það er ekki Þorgerði að þakka!

Þetta neikvæða lið er svo skrýtið.
Það er alltaf að skamma mann.
Þó maður geri ekki neitt,
það er alltaf að skamma mann.

Það má ekki heldur gera grín
að þeim sem þamba Nei-ið eins og vín.
Þær Guðríður og Gyða,
þær eiga flottar bokkur
og eiga líka kvótann fyrir okkur.

Það má ekki horfa á forsætis-
ráðherra í Rest is Politics.
Við gætum skipt um skoðun
og kosið eitthvað annað,
eitthvað sem að Mogginn hefur bannað.

Þetta neikvæða lið er svo skrýtið.
Það er alltaf að skamma mann.
Þó maður geri ekki neitt,
það er alltaf að skamma mann.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Trump með óvenjulegt útspil við Kanada
Heimur

Trump með óvenjulegt útspil við Kanada

„Hafið tilbúinn pakka af batteríum“
54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni
Pólitík

54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni

Tveir létust í nautahlaupi í Mexíkó
Myndband
Heimur

Tveir létust í nautahlaupi í Mexíkó

Alríkisdómari hafnar kröfu Ghislaine Maxwell um frelsi
Heimur

Alríkisdómari hafnar kröfu Ghislaine Maxwell um frelsi

Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum
Landið

Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland
Pólitík

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland

Handtekinn fyrir að berja hund
Heimur

Handtekinn fyrir að berja hund

„Ef ég er að fela þetta þá væri það erfiðara“
Fólk

„Ef ég er að fela þetta þá væri það erfiðara“

Skelfing í Portúgal þegar maður ók á hóp ungmenna og lögreglumenn
Heimur

Skelfing í Portúgal þegar maður ók á hóp ungmenna og lögreglumenn

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn
Pólitík

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn

Sigfús fasteignasali kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna
Pólitík

Sigfús fasteignasali kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna

Eigandi 49ers sakaður um vændiskaup
Sport

Eigandi 49ers sakaður um vændiskaup

Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að „móðga hetjur“
Heimur

Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að „móðga hetjur“

Pólitík

54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni
Pólitík

54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni

„Markmiðið er að tryggja að fjármunir borgarinnar nýtist sem best í þágu Reykvíkinga“
Ragnar Þór skipar nýja nefnd
Pólitík

Ragnar Þór skipar nýja nefnd

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland
Pólitík

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn
Pólitík

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn

Sigfús fasteignasali kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna
Pólitík

Sigfús fasteignasali kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna

Segir líkindi milli Nei-manna og MAGA
Pólitík

Segir líkindi milli Nei-manna og MAGA

Loka auglýsingu