1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

4
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

5
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

6
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

7
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

8
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

9
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

10
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Til baka

Lést eftir fall af svölum á hjúkrunarheimili

Svona hörmulegt atvik fer auðvitað í ákveðið greiningarferli

Hjúkrunarheimilið Eir
Nú stendur yfir vinna við að fara yfir alla verkferla og meta hvort ástæða sé til að grípa til frekari öryggisráðstafana
Mynd: Skjáskot/ja.is

Miðlæg rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar andlát aldraðrar konu sem lést eftir að hafa fallið fram af svölum á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi. Útkallið barst sunnudaginn 28. júní sl. og benda fyrstu vísbendingar til þess að um hörmulegt slys hafi verið að ræða segir í frétt Vísi sem greindi fyrst frá.

Að sögn Grétars Stefánssonar, aðalvarðstjóra á lögreglustöð fjögur, var málinu vísað til miðlægrar rannsóknardeildar í samræmi við hefðbundinn feril þegar alvarleg slys eiga sér stað. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn á deildinni, staðfestir að ekkert bendi til annars en að um slysni hafi verið að ræða.

Stuðningur við starfsfólk


Eybjörg Hauksdóttir, forstjóri Eirar, segir að starfsfólk hafi þegar í stað kallað til viðbragðsaðila og lögreglu þegar atvikið átti sér stað. Embætti landlæknis var sömuleiðis tilkynnt um málið og var áfallateymi Rauða krossins fengið til að styðja við það starfsfólk sem var á vakt.

„Svona hörmulegt atvik fer auðvitað í ákveðið greiningarferli hér innanhúss út frá öryggismálum,“ segir Eybjörg. Hún tekur fram að hvorki hún né aðrir starfsmenn minnist þess að sambærilegt slys hafi áður átt sér stað á heimilinu.

Ekki um lokaða deild að ræða


Forstjórinn leggur áherslu á að hjúkrunarheimili séu fyrst og fremst heimili fólks. Deildin sem konan dvaldi á var ekki skilgreind sem lokuð deild. Nú stendur yfir vinna við að fara yfir alla verkferla og meta hvort ástæða sé til að grípa til frekari öryggisráðstafana á svölum eða sameiginlegum svæðum.

Að sögn forstjóra ríkir mikil sorg á vinnustaðnum og eru samúðarkveðjur sendar til aðstandenda hinnar látnu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Eva Hauksdóttir tjáir sig um frávísun í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem ákærður var fyrir að valda dauða móður hennar.
Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

Ísraelskir ráðherrar leiddu kröfugöngu um nýjar landnemabyggðir á Gaza
Myndband
Heimur

Ísraelskir ráðherrar leiddu kröfugöngu um nýjar landnemabyggðir á Gaza

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin
Myndband
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

Sprenging skók alríkisbyggingu í New York
Myndband
Heimur

Sprenging skók alríkisbyggingu í New York

Ellefu ára drengur lést í fjallgöngu með föður sínum
Heimur

Ellefu ára drengur lést í fjallgöngu með föður sínum

Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Eva Hauksdóttir tjáir sig um frávísun í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem ákærður var fyrir að valda dauða móður hennar.
Ofurverð á Íslandi fær fólk til að hlæja og gráta
Innlent

Ofurverð á Íslandi fær fólk til að hlæja og gráta

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Markús endaði á bráðamóttöku eftir árás nágrannans
Innlent

Markús endaði á bráðamóttöku eftir árás nágrannans

Vinsæl leikföng tekin af markaði vegna köfnunarhættu
Innlent

Vinsæl leikföng tekin af markaði vegna köfnunarhættu

Loka auglýsingu