Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Leyndardómar og litagleði

Hrafnhildur og Hildi­gunnur bjóða í sjala­gleðina

Textíl Barinn tekur á móti prjónurum
Textíl Barinn tekur á móti prjón­urum Mynd: Textíl Barinn

Hitað upp fyrir leyni-sjalasamprjón hins þekkta prjónahönnuðar Stephen West með Textíl Barnum

Þær Hrafnhildur og Hildi­gunnur hjá Textíl Barnum taka vel á móti prjónurum, sem ætla að taka þátt í hinu árlega sjala­samprjóni Stephen West, á Borgar­bókasafninu Gerðu­bergi laugar­daginn 3. október frá kl. 14:30 - 16:30.

Samprjónið hefst formlega 1. október og virkar þannig að í hverri viku, í 4 vikur, er gefin út vísbending eða partur af prjóna­uppskrift. Þátt­takendur vita því ekki í upphafi hvernig loka­útkoma sjalsins verður. Það verður því skemmtilegt að fylgjast með fram­vindunni hjá prjónurum út um allan heim, ekki síst hinum ýmsu lita­samsetningum sjalanna.

Til að fanga lita- og sköpunar­gleðina verður boðið til sjala­gleði í Gerðu­bergi og eru allir prjónarar sem ætla að vera með í samprjóninu í ár hvattir til að mæta og eiga saman sprúðlandi prjóna­stund. Þá er tilvalið að nýta garn­afganga í anda Textíl Barsins en samprjóns­sjalið er einmitt í 8 litum í ár og henta afgangar því fullkomlega í verkefnið.

Textíl Barinn er hönnunar­stúdíó þar sem tvíeykið Hildi­gunnur og Hrafnhildur standa vaktina. Þær sérhæfa sig í því að gefa áður elskuðum textíl nýtt líf með endur­vinnslu og endur­hönnun.

Hér er hægt að kynna sér samprjóns­sjal Stephen West.

Borgar­bókasafnið tekur þátt í alþjóð­legu verkefni til þriggja ára sem nefnist make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur með áherslu á endur­nýtingu textíls. Verkefnið er styrkt af New Horizons sjóði Evrópu­sambandsins.

Sjá viðburð á heimasíðu Borgar­bóka­safnsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt