1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Innlent

Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu

4
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

5
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

6
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

7
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

8
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

9
Innlent

Fjórir bílar í alvarlegu umferðarslysi

10
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Til baka

Limminnsti maður heims fagnar

Engar myndir hafa verið birtar hingað til

Michael Phillips
Michael Phillips
Mynd: ITV

Bandaríkjamaðurinn Michael Phillips, sem vakið hefur mikla athygli fyrir að segjast vera með minnsta getnaðarlim í heimi, gekkst á mánudag undir aðgerð sem ætlað er að auka umfang limsins. Hann segir aðgerðin hafa heppnast vel.

Phillips greindi frá þessu í samtali við TMZ. Aðgerðin fór fram á sjúkrahúsi í Norður-Karólínu og fólst í því að hálfvaranlegu fylliefni var sprautað í getnaðarliminn til að auka ummál hans.

Að sögn Phillips tók heimsóknin um þrjár klukkustundir. Fyrst var deyfikrem borið á svæðið og honum síðan gefin staðdeyfing áður en fylliefninu var sprautað á nokkra staði.

Phillips segir að markmið aðgerðarinnar hafi ekki verið kynferðislegt heldur hafi hann fyrst og fremst viljað auðvelda sér þvaglát. Þegar limurinn væri slakur drægist hann venjulega inn í líkamann, sem hefði valdið honum óþægindum. Eftir aðgerðina haldist hann hins vegar úti og segir Phillips það þegar hafa gert þvaglát þægilegri.

Nokkur bólga er enn á svæðinu og er búist við að hún vari í um viku. Endanleg niðurstaða aðgerðarinnar liggur því ekki fyrir fyrr en bólgan hefur hjaðnað.

Aðgerðin kostaði Phillips um fjögur þúsund Bandaríkjadali, jafnvirði rúmlega hálfrar milljónar íslenskra króna. Hann safnaði fyrir henni með söfnun á GoFundMe.

Phillips hafði áður íhugað skurðaðgerð en hætti við vegna þeirrar áhættu sem henni fylgdi. Hann segir lækna hafa tjáð sér að mögulegt sé að endurtaka fylliefnameðferðina eftir sex mánuði, annaðhvort til frekari stækkunar eða til að viðhalda árangrinum.

Phillips hefur áður haldið því fram að getnaðarlimur hans mælist aðeins 0,38 tommur, eða tæpur einn sentímetri, í reisn. Eftir nýjustu meðferðina kann hann því að eiga erfiðara með að gera tilkall til óformlegs titils síns sem maðurinn með minnsta getnaðarlim heims.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu