1
Minning

Flosi Kristinsson er fallinn frá

2
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

3
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir að losa þig við úr geymslunni

4
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

5
Innlent

Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu

6
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

7
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

8
Innlent

Reyndi að lauma sér til Íslands með fölsuðu skilríki

9
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

10
Innlent

Fjórir bílar í alvarlegu umferðarslysi

Til baka

Lionel Richie á gjörgæslu eftir tónleika í St. Louis

Gat ekki staðið í lokalaginu

Lionel Richie
Lionel Richie á gjörgæsludeild 77 ára gamall
Mynd: Instagram/Lionel Richie

Bandaríski söngvarinn Lionel Richie, 77 ára, var lagður inn á gjörgæsludeild sjúkrahúss í St. Louis um síðastliðna helgi. Um er að ræða aðra spítalainnlögn stjörnunnar á þessu sumri, en hann þurfti einnig að leita læknisaðstoðar í júní síðastliðnum.

Innlögnin átti sér stað á laugardagskvöld eftir að Richie lauk tónleikum á hinu þekkta útileikhúsi The Muny í St. Louis. Samkvæmt sjónarvottum og fréttum vestanhafs átti söngvarinn í nokkrum erfiðleikum undir lok sýningarinnar vegna mikils hita á svæðinu. Hann þurfti að biðja starfsfólk sitt um stól á sviðinu til þess að geta klárað að flytja lokaslagara kvöldsins, „All Night Long“, sitjandi. Skömmu eftir að hann steig af sviði var farið með hann á sjúkrahús.

Heimildir herma að Richie hafi verið vistaður á gjörgæsludeild svo læknar gætu fylgst náið með honum og framkvæmt rannsóknir, en grunur leikur á að hann hafi þjáðst af alvarlegum vökvaskorti. Fólk nálægt söngvaranum segir hann þó ágætlega á sig kominn miðað við aðstæður og að innlögnin sé fyrst og fremst varúðarráðstöfun. Vonast er til þess að hann verði útskrifaður fljótlega.

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Richie veikist á sviði. Í júní síðasliðinn þurfti hann að stöðva tónleika snemma í Minnesota eftir að hafa fundið fyrir miklum svima og var hann þá fluttur með sjúkrabíl til skoðunar.

Richie er sem stendur á tónleikaferðalagi og eru næstu fyrirhuguðu tónleikar hans áætlaðir í San Francisco þann 26. september. Ekki liggur fyrir hvort veikindin muni hafa áhrif á framhald ferðalagsins.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu