1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

4
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

5
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

6
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

7
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

8
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

9
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

10
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Til baka

Læknar glíma við upplýsingaskort

Heilbrigði manna, dýra og umhverfis er talið órjúfanlega tengt

Læknar
Í tilbúnum sjúkratilfellum sem lögð voru fyrir þátttakendur kusu margir læknar að velja lyf með minni umhverfisáhrif, jafnvel þótt þau væru klínískt áhrifaminni en önnur valmöguleikar.
Mynd: Samsett mynd/Hi.is

Meirihluti íslenskra lækna telur umhverfismál mikilvæg en skortur á upplýsingum hamlar vistvænni lyfjavali.

Ný íslensk rannsókn sýnir að tæplega þrír af hverjum fjórum læknum telja umhverfis- og loftslagsmál mikilvæg. Þetta er fyrsta rannsóknin sem gerð hefur verið hér á landi á viðhorfum íslenskra lækna til umhverfisáhrifa lyfja. Niðurstöðurnar benda til þess að mikill vilji sé til að huga að umhverfissjónarmiðum, en í praxís skili það sér illa vegna skorts á aðgengilegum upplýsingum.

Rannsóknin var framkvæmd sem lýsandi þversniðskönnun meðal meðlima í Læknafélagi Íslands í lok árs 2025. Alls fengu 1.543 læknar spurningalistann sendan og luku 163 þeirra svörun. Að rannsókninni stóðu Hjalti Már Björnsson, dósent við Læknadeild, Freyja Jónsdóttur, dósent við Lyfjafræðideild, Salóme Ásta Arnardóttir heimilislæknir og Johanna Villén lyfjafræðingur segir í grein um rannsóknina inn á vef HI.

Vaxandi meðvitund en gjá á milli vilja og verka

Helstu niðurstöður sýna að 73% þátttakenda telja umhverfis- og loftslagsmál mikilvæg eða frekar mikilvæg. Sýna læknar því ríkan skilning á svokallaðri „Einnar heilsu nálgun“ (e. One Health) Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, þar sem heilbrigði manna, dýra og umhverfis er talið órjúfanlega tengt.

Í tilbúnum sjúkratilfellum sem lögð voru fyrir þátttakendur kusu margir læknar að velja lyf með minni umhverfisáhrif, jafnvel þótt þau væru klínískt áhrifaminni en önnur valmöguleikar. Þrátt fyrir þennan skýra vilja sögðust aðeins um 7% lækna taka umhverfisáhrif oft eða alltaf með í reikninginn þegar kemur að raunverulegu lyfjavali fyrir sjúklinga í daglegu starfi.

Kalla eftir auknu gagnsæi frá lyfjafyrirtækjum

Niðurstöðurnar varpa ljósi á að helsta fyrirstaðan sé upplýsingaskortur. Sáralítill hluti lækna hafði kynnt sér umhverfisáhrif lyfja í íslenskum eða erlendum upplýsingakerfum. Samhliða kom fram ríkur stuðningur meðal lækna við stefnumótandi aðgerðir til úrbóta, og þá sérstaklega að lyfjafyrirtæki verði skylduð til að birta opinberlega umhverfisgögn um lyf sín.

Lyf og lyfjaleifar finnast nú þegar í ferskvatni og sjó víða um heim, þar á meðal á Íslandi, þar sem mælst hafa leifar af kynhormónum, sýklalyfjum og geðlyfjum. Lyfjanotkun hefur einnig neikvæð áhrif á loftslagið vegna útblásturs við framleiðslu og dreifingu, auk efna í innöndunarlyfjum og notkunar svæfingargasa.

Aðstandendur rannsóknarinnar telja niðurstöðurnar sýna vaxandi meðvitund lækna en skortur á upplýsingagjöf og flokkunarkerfum, líkt og þróuð hafa verið í nágrannalöndunum, hamli því að ekki sé nægilega mikið tekið tillumhverfissjónarmið við ákvörðunartöku og lyfjaávísanir á Íslandi. Er rannsókninni ætlað að leggja grunn að frekari stefnumótun og umræðu um sjálfbærni í íslenskri heilbrigðisþjónustu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Eva Hauksdóttir tjáir sig um frávísun í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem ákærður var fyrir að valda dauða móður hennar.
Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

Ísraelskir ráðherrar leiddu kröfugöngu um nýjar landnemabyggðir á Gaza
Myndband
Heimur

Ísraelskir ráðherrar leiddu kröfugöngu um nýjar landnemabyggðir á Gaza

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin
Myndband
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

Sprenging skók alríkisbyggingu í New York
Myndband
Heimur

Sprenging skók alríkisbyggingu í New York

Ellefu ára drengur lést í fjallgöngu með föður sínum
Heimur

Ellefu ára drengur lést í fjallgöngu með föður sínum

Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Eva Hauksdóttir tjáir sig um frávísun í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem ákærður var fyrir að valda dauða móður hennar.
Ofurverð á Íslandi fær fólk til að hlæja og gráta
Innlent

Ofurverð á Íslandi fær fólk til að hlæja og gráta

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Markús endaði á bráðamóttöku eftir árás nágrannans
Innlent

Markús endaði á bráðamóttöku eftir árás nágrannans

Vinsæl leikföng tekin af markaði vegna köfnunarhættu
Innlent

Vinsæl leikföng tekin af markaði vegna köfnunarhættu

Loka auglýsingu