
Lögregla í New York skaut 49 ára konu til bana á Times Square eftir að hún hafði, að sögn lögreglu, stungið tvo einstaklinga með hnífi og síðan ógnað lögreglumönnum með vopninu.
Atvikið átti sér stað á hinu fjölfarna Times Square á Manhattan. Samkvæmt upplýsingum lögreglu réðst konan fyrst á karlmann og stakk hann með hnífi áður en hún réðst á konu skömmu síðar. Talið er að innan við 30 sekúndur hafi liðið á milli árásanna.
Lögreglumenn komu fljótlega á vettvang og mættu þar konunni, sem var enn vopnuð hnífi. Samkvæmt vitnum á vettvangi mátti sjá lögreglumenn ítrekað skipa henni að leggja vopnið frá sér.
Að sögn lögreglu sinnti konan ekki fyrirmælunum heldur hótaði hún að drepa lögreglumennina og gekk í átt að þeim með hnífinn á lofti. Lögreglumenn brugðust við með því að skjóta á hana.
Konan var úrskurðuð látin í kjölfarið.
New York Post greinir frá því að annað fórnarlamb hnífaárásarinnar hafi síðar látist af sárum sínum. Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan hins fórnarlambsins.
Lögreglan í New York rannsakar nú bæði hnífaárásirnar og skotárás lögreglumannanna, líkt og venja er þegar lögregla beitir skotvopnum við störf.
