Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Lögreglan rannsakar grunsamlegt andlát Þjóðverja á Kanarí

Rann­sakendur vinna nú að því að rekja ferðir konunnar síðustu dagana

Mogán
Mogán Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Guido Haeger/Wikipedia

Spænska lögreglan rannsakar dauða 61 árs gamallar þýskrar konu sem fannst látin í gili á Kanarí. Grunur leikur á að konan hafi verið myrt samkvæmt spænskum fjöl­miðlum.

Lík konunnar fannst í Cañada de los Gatos-gilinu í Mogán á suður­hluta eyjunnar. Vegfarendur sem áttu leið um svæðið fundu líkið og gerðu yfir­völdum viðvart.

Samkvæmt upplýsingum sem fram hafa komið um rannsókn málsins fannst stór steinn á höfði konunnar og hafði hún hlotið alvarlega höfuð­áverka. Aðstæður á vettvangi hafa vakið grun­semdir um að dauða hennar hafi ekki borið að með slysförum.

Lögreglan rannsakar málið því sem mögulegt manndráp, þótt yfirvöld hafi tekið fram að ekki hafi enn verið staðfest að konan hafi orðið fyrir árás.

Lögregla staðfesti á laugardag hver hin látna var. Hún var 61 árs þýskur ríkis­borgari sem hafði búið á Kanarí og átti fjöl­skylda hennar fasteign á eyjunni. Að undan­förnu hafði hún þó hafst við í bráðabirgða­skýli eða tjaldi skammt frá þeim stað þar sem lík hennar fannst.

Rann­sakendur vinna nú að því að rekja ferðir konunnar síðustu dagana áður en hún lést og varpa ljósi á hvað gerðist.

Frekari rannsókn lögreglu munu meðal annars beinast að því að staðfesta dánar­orsök konunnar og hvort annar einstaklingur hafi átt þátt í dauða hennar. Rannsókn málsins stendur enn yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs