1
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

2
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

3
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

4
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

5
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

6
Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn

7
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

8
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

9
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

10
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Til baka

Látinn skákmeistari, dularfullur jakki og draumur sem fór úr böndunum

„Áfram held ég að dreyma um menn sem eru ekki þeir sem þeir þykjast vera“

Egill Helgason
Egill HelgasonEgill var blekktur en þó aðeins í draumi

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason segir frá undarlegum draumi í Facebook-færslu sem vakið hefur kátínu í morgunsárið.

Í drauminum sat Egill til borðs með manni sem hann taldi vera rússneska skákmeistarann Viktor Kortsnoj. Það var ekki fyrr en síðar í draumnum sem Egill áttaði sig á því að maðurinn var svikahrappur sem þóttist vera hinn kunni skákmeistari.

„Áfram held ég að dreyma um menn sem eru ekki þeir sem þeir þykjast vera,“ skrifar Egill í færslunni.

Í draumnum sat Egill í veislu við Laugaveg ásamt manni sem hann taldi vera Kortsnoj. Skákáhugamaðurinn Páll Magnússon sat einnig við borðið. Egill segir að vel hafi farið á með sér og hinum meinta skákmeistara og að hann hafi rifjað upp ýmis afrek hans á skáksviðinu.

Hann hafi þó ekki treyst sér til að ræða einvígi Kortsnojs við Jóhann Hjartarson, sem Kortsnoj tapaði.

Reyndi að selja honum dýran jakka

Eftir veisluna fór Egill út með manninum, sem ætlaði að fá sér sígarettu. Kortsnoj var þekktur fyrir miklar reykingar. Þá tók maðurinn hins vegar upp á því að reyna að selja Agli skinnjakka sem hann sagði kominn alla leið frá Jakútíu.

Jakkinn átti að vera ómetanlegur og ætlaður konu fremur en karli. Egill sagðist telja að eiginkona sín gæti haft áhuga á flíkinni, en fór að efast þegar verðið kom í ljós.

„150 evrur, ég spurði aftur – já það var prísinn,“ skrifar Egill.

Verðið þótti honum óvenju lágt og þegar hann skoðaði jakkann nánar komst hann að því að hann var úr ódýru gerviefni og illa saumaður.

Þegar þeir gengu aftur inn á veitingastaðinn rann upp fyrir Agli að maðurinn væri alls ekki Viktor Kortsnoj heldur yngri maður sem þóttist vera hann. Kortsnoj væri enda látinn.

Ráðið í drauminn

Draumurinn tók síðan enn óvæntari stefnu. Egill lýsir því hvernig húsið, sem minnti hann á hús Máls og menningar, tók að beyglast saman. Hann komst hvorki fram né aftur.

„En það er önnur saga,“ segir Egill að lokum.

Fjölmargir hafa líkað við færslu Egils og hlegið með honum að drauminum en fréttaþulurinn og fjölmiðlakonan María Sigrún Hilmarsdóttir réði drauminn í eftirfarandi athugasemd:

„Jakkinn er ESB. Kortsnoj þjóðaratkvæðagreiðslan. Hús Máls&Menningar er Ísland“.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann
Heimur

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús
Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum
Myndir
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti
Innlent

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúður vakti óhug við grunnskóla
Heimur

Trúður vakti óhug við grunnskóla

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Laxness slær í gegn hjá The Guardian
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
Myndir
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Ekkert minni konur en aðrar konur
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Loka auglýsingu