1
Innlent

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi

2
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

3
Fólk

Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp

4
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

5
Heimur

Sjötíu og sjö prósent líkur á eldgosi á Kanaríeyjum

6
Fólk

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri

7
Fólk

Landsliðsmaður Íslands á von á barni

8
Fólk

Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu

9
Innlent

Skilur ekki gagnrýni Breiðfylkingarinnar á samkomulag VR

10
Fólk

Benedikt dvaldi fjóra daga á sjúkrahúsi eftir óvenjulegt slys

Til baka

Mætti ísbirni, var handtekinn fyrir njósnir og gekk 58 þúsund kílómetra

Karl Bushby lagði af stað í göngu 29 ára gamall og er nú að klára síðasta spölin, 28 árum síðar.

Karl Bushby
Karl BushbyKarl gekk bókstaflega yfir sjó og land
Mynd: Instagram

Hann hefur farið yfir heimsálfur, verið ógnað með byssum, fangelsaður og vísað úr landi, næstum drukknað og lent í lífshættu vegna hungurs og ísbjarna. Nú snýr hann loks aftur til Englands.

Karl Bushby er 57 ára og hefur verið á ferðalagi um heiminn frá því hann yfirgaf heimabæ sinn Hull árið 1998. Hann lagði upp með að ganga frá syðsta odda Suður-Ameríku, Punta Arenas í Chile, alla leið heim til Englands, án þess að nota farartæki til að komast áfram.

Bushby ætlaði upphaflega að ljúka ferðinni á 12 árum en ýmsar hindranir, þar á meðal fjármálakreppur, heimsfaraldur, stríð, vegabréfsáritanir og strangar innflytjendareglur, lengdu ferðina í 28 ár. Hann hefur nú gengið um 58 þúsund kílómetra og farið um 29 lönd.

Reglur hans voru einfaldar: Hann mátti ekki nota farartæki til að komast áfram og mátti ekki snúa heim fyrr en hann hefði lokið ferðinni fótgangandi. Ef hann þurfti að stöðva ferðina eða fara af leiðinni varð hann að snúa aftur á nákvæmlega sama stað þegar hann hélt áfram.

Í dag er hann 57 ára gamall, með handaband sem gæti brotið bein, búlduleitara andlit og vott af miðaldrabumbu. Hann segir að fólk búist ekki við því að hann líti svona út. Það sjái hann annaðhvort fyrir sér sem Gandálf, með hvítt skegg niður að hnjám, eða sem stæltan íþróttamann. „Allir segja: ef hann hefur verið á göngu í 28 ár, af hverju er hann þá svona feitur? En oftast nær borða ég á bensínstöðvum og hamborgarabúllum, sit einhvers staðar í þrjá mánuði og bíð eftir vegabréfsáritun, eldist og borða kex og smákökur.“

Nærri dauða á Beringssundi

Ein hættulegasta áskorunin var að komast yfir Beringssund frá Alaska til Rússlands ásamt franska-ameríska ævintýramanninum Dimitri Kieffer. Þeir þurftu að fara yfir hafsvæði þar sem ísinn er sífellt að brotna upp. Þeir höfðu enga reynslu af heimskautaaðstæðum.

Á ferðinni brast ísinn undir þeim og sleðar þeirra, sem vógu samtals um 90 kíló með vistum, féllu í ískaldan sjóinn. Ef þeir hefðu misst vistirnar hefðu þeir átt á hættu að deyja úr hungri eða ofkælingu.

Þeir mættu einnig ísbirni sem hefði auðveldlega getað drepið þá.

„Við reyndum að fæla hann í burtu en höfðum aðeins flugelda og þeir dugðu ekki. Að lokum færðum við okkur hægt í áttina að birninum. Hann stoppaði og horfði á okkur. Ef hann hefði viljað ná okkur hefðum við verið dauðir. Það var engin undankomuleið,“ rifjar Bushby upp í viðtali við Guardian.

Eftir 14 daga tókst þeim að komast yfir sundið, rétt áður en matarbirgðir þeirra kláruðust. Þegar þeir komu til Síberíu voru þeir handteknir, ákærðir og sakfelldir fyrir njósnir. Rússnesk yfirvöld vildu að þeir afplánuðu að minnsta kosti fimm ára fangelsisdóm en ákváðu að lokum að senda þá aftur til Alaska.

Bushby hefur einnig verið í lífshættu í frumskógum Kólumbíu, þar sem hann var nokkrum sinnum ógnað með byssum. Hann segir að róleg framkoma og bros hafi oft hjálpað honum að komast úr hættulegum aðstæðum. Þá hafi annað hjálpað honum í þeim aðstæðum:

„Sem betur fer hafði ég, þegar ég átti í samskiptum við byssumennina, afrit af blaðaúrklippum um mig frá Suður-Ameríku. Með þeim gat ég talað mig út úr hverju sem var.“

Óvænt góðvild ókunnugra

Þrátt fyrir hættuna segir Bushby að ferðalagið hafi kennt honum að treysta fólki. Hann hafi áður haft fremur neikvæða sýn á mannkynið eftir 12 ár í hernum, en upplifunin á ferðalaginu hafi gjörbreytt henni.

Hann rifjar upp hvernig ókunnugt fólk hafi gefið honum mat, vatn og húsaskjól þegar hann var illa staddur. Í Atacama-eyðimörkinni í Chile hafi vörubílstjórar reglulega rétt honum ávexti og vatn á meðan hann gekk eftir þjóðveginum.

„Ég segi alltaf að 99,999 prósent þeirra sem ég hitti hafi sýnt það besta sem mannkynið hefur upp á að bjóða. Það hefur verið eins í öllum löndum,“ segir hann.

Ferðalagið hefur þó kostað hann mikið persónulega. Hann skildi við eiginkonu sína áður en hann lagði af stað og hefur átt nokkur ástarsambönd sem hafa ekki staðist langvarandi fjarveru hans. Hann á soninn Adam, sem er nú 36 ára, og 12 ára barnabarn sem hann hefur enn ekki hitt.

Bushby viðurkennir að ferðalagið hafi verið eigingjarnt verkefni.

„Þessi 28 ár hafa snúist um mig. Ég hef verið miðpunkturinn í mínum eigin heimi. Þetta hefur snúist um að koma sjálfum mér frá einum stað til annars og sjá til þess að ég lifi ferðina af,“ segir hann.

Kvíðir heimkomunni

Bushby synti yfir Ermarsund fyrir nokkrum dögum og kom þannig aftur til Englands. Hann hyggst ganga síðasta spölinn til Hull og vonast til að koma þangað 1. nóvember, nákvæmlega sama dag og hann lagði upp í ferðina árið 1998.

Þrátt fyrir að hafa lifað af ótrúlegar raunir kvíðir hann heimkomunni. Hann segir að tilgangur lífs síns hafi um áratugaskeið verið að ljúka ferðinni og nú þurfi hann að finna sér nýtt hlutverk.

„Ég veit ekki hvernig maður á að haga sér eins og fullorðinn maður. Ég þarf að finna mér vinnu og koma mér fyrir. Það er ógnvekjandi,“ segir hann. Hann gerir ráð fyrir að búa fyrst um sinn hjá móður sinni og segir að hann þurfi að leggja vinnu í að endurbyggja samband sitt við fjölskylduna.

Hann telur sig hafa breyst mikið á ferðalaginu. Áður hafi hann verið íhaldssamari og litið á Bretland sem miðju heimsins, en nú hafi hann víðari sýn á lífið.

„Heimurinn er ótrúlegur staður. Fólk er allrar fyrirhafnar virði,“ segir hann.

Þrátt fyrir að ferðalaginu sé að ljúka sér hann ekki fyrir sér að setjast að í Hull til frambúðar. Heimildarmynd er í undirbúningi um ævintýri hans, bók er væntanleg og fyrirhugað er að hann haldi fyrirlestra um ferðina.

En ætlar hann að leggja aftur af stað í annað langt gönguferðalag?

„Nei!“ svarar Bushby ákveðinn.

Það kemur jafnvel á óvart að heyra að hann hafi aldrei haft sérstaka ánægju af því að ganga.

„Þetta er hundleiðinlegt,“ segir hann hlæjandi. „Það var ferðalagið í heild sem heillaði mig, að reyna að komast frá A til B.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Kúga börn til að senda nektarmyndir“
Innlent

„Kúga börn til að senda nektarmyndir“

Um 350 brot voru tilkynnt á fyrri helmingi ársins og voru börn tæplega helmingur brotaþola
Gerrard vill að Manchester City verði refsað harkalega
Sport

Gerrard vill að Manchester City verði refsað harkalega

Rölti um þjóðgarð og fór heim með risademant
Heimur

Rölti um þjóðgarð og fór heim með risademant

Tíu milljarða skólaframkvæmdir kveikja pólitískt bál í Reykjanesbæ
Pólitík

Tíu milljarða skólaframkvæmdir kveikja pólitískt bál í Reykjanesbæ

Íslensk karlasamtök kvarta undan ójafnrétti
Innlent

Íslensk karlasamtök kvarta undan ójafnrétti

Nýdönsk stofnar fyrirtæki
Peningar

Nýdönsk stofnar fyrirtæki

Bryan Cranston harmi sleginn eftir andlát sjónvarpssonar síns
Heimur

Bryan Cranston harmi sleginn eftir andlát sjónvarpssonar síns

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu
Myndir
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

Fingralangir fóru á stjá í Garðabæ
Innlent

Fingralangir fóru á stjá í Garðabæ

Lögregla kölluð til vegna „afbrigðilegrar hegðunar“
Innlent

Lögregla kölluð til vegna „afbrigðilegrar hegðunar“

Neville vill losna undan City þar til örlög félagsins ráðast
Sport

Neville vill losna undan City þar til örlög félagsins ráðast

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA
Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA

Heimur

Rölti um þjóðgarð og fór heim með risademant
Heimur

Rölti um þjóðgarð og fór heim með risademant

Rússar hafna 60 daga vopnahléi vegna forsetakosninga í Úkraínu
Heimur

Rússar hafna 60 daga vopnahléi vegna forsetakosninga í Úkraínu

Mætti ísbirni, var handtekinn fyrir njósnir og gekk 58 þúsund kílómetra
Heimur

Mætti ísbirni, var handtekinn fyrir njósnir og gekk 58 þúsund kílómetra

Bryan Cranston harmi sleginn eftir andlát sjónvarpssonar síns
Heimur

Bryan Cranston harmi sleginn eftir andlát sjónvarpssonar síns

Maðurinn sem stökk til tígrisdýrsins verður ekki nafngreindur
Heimur

Maðurinn sem stökk til tígrisdýrsins verður ekki nafngreindur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

Loka auglýsingu