Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Maríanna fyrsti kvenkyns rallýökumaðurinn býr í tösku

Borðar steik í morgunmat og á allt lífið í einni ferða­tösku

Lífskúnstnerinn Maríanna Friðjónsdóttir
Lífskúnstner­inn Maríanna Frið­jóns­dóttir fór úr rallýi og af Alþingi í algjört frelsi Mynd: Skjáskot

Maríanna Friðjóns­dóttir, lífskúnstner og fyrrum rallý­ökumaður og alþingis­maður, hefur síðustu 15 ár búið í ferða­tösku og látið eigið frelsi stýra förinni. Hún segist nánast engar veraldlegar eigur eiga sem binda hana og vílar ekki fyrir sér að tjalda á möl eða fjalls­tindum í leit að ævintýrum um Evrópu. Rætt var við Maríönnu í sjónvarps­þættinum Á gamans aldri í umsjón Ragnhildar Stein­unnar Jóns­dóttur.

Maríanna á að baki afar fjöl­breyttan feril en hún braut blað í sögunni sem fyrsti kvenkyns rallý­ökumaður landsins. Hún hefur einnig rekið veitingahús í Danmörku, setið á Alþingi fyrir Alþýðu­flokkinn og starfað við sjónvarps­framleiðslu beggja vegna Atlantshafsins.

Í dag einkennist líf hennar af mikilli naum­hyggju og ferða­lögum.

„Ég hef valið að vera í þessu flæði og frelsi að eiga ekkert sem bindur mig. Ég get pakkað niður á morgun í 20 kílóa tösku og sett skrifstofu­dótið mitt í lítinn bakpoka og það er allt sem ég á,” segir Maríanna.

Steik í morgunmat

Líkamleg og andleg heilsa er Maríönnu ofarlega í huga en hún stundar hugleiðslu á hverjum morgni. Hún fylgir jafnframt óhefðbundnum venjum þegar kemur að næringu og borðar meðal annars steik í morgunmat. Þá er hún óhrædd við tæknina og nýjungar, elskar gervi­greindina og hefur auk þess kynnt sér tilfinningalíf plantna sérstak­lega. Hún segist setja sér það markmið að læra að minnsta kosti einn nýjan hlut á hverjum einasta degi.

Læra að eldast saman í Portúgal

Þrátt fyrir stöðugt flakk á milli staða hefur Maríanna komið sér upp fastri vetrar­setu í litlu sveita­þorpi í Portúgal. Þar dvelur hún ásamt 93 ára gamalli móður sinni, Viktoríu.

Innan um blóm­strandi tré og fuglasöng njóta þær mæðgur þess að eldast saman. Maríanna telur það mikil forréttindi að fá að fylgja móður sinni á þessum æviskeiðum og bendir á að eins og með allt annað í lífinu, þá þurfum við að læra listina að eldast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“